Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Stolt Vesturbæjar

Sumardagurinn fyrsti í Vesturbæ

Hvert einasta hverfi borgarinnar allt frá Vesturbæ norður á Kjalarnes er ómissandi þáttur í heildarmynd Reykjavíkur. Öll búa hverfin yfir ákveðinni sérstöðu og státa af Stoltum í mannlífi, umhverfi  og aðstæðum, samanber listann að neðan yfir stolt Vesturbæjar.

1. Þrettándahátíð Vesturbæjar.  Foreldrafélög grunnskóla í Vesturbænum standa að árlegri þrettándagleði með stuðningi Hverfisráðs Vesturbæjar, Vesturgarðs, Frostaskjóls, Neskirkju, Ægisbúa, KR og ýmissa fyrirtækja.  Hátíðin er ein sú myndarlegasta hér á landi.

2. Vesturbær-bærinn okkar! Fjöldi samráðshópa starfa að velferð og eflingu mannlífs í Vesturbæ.  Þar á meðal eru áfallateymi, grenndarþjónustuhópur aldraðra og viðbragðsteymi.

3. Orkan. Mikilvægt er að stuðla að virkni fólks án atvinnu.  Í því skyni er starfræktur þverfaglegur hópur í Vesturgarði.  Starfið hefur skilað mikilvægum árangri.

4. Sjóminjasafnið Víkin. Safnið undirstrikar nálægð Vestubæjar við sjó og dregur fram söguna á lifandi hátt.  Þetta myndarlega safn hefur nýst leik- og grunnskólabörn sem og öðrum borgarbúum.

5. Vinafjölskyldur innflytjenda í Vesturbæ. Forvarna- og framfarasjóður Reykjavíkurborgar styrkti frumkvæði foreldra í Vesturbæjarskóla við að bjóða foreldra og börn af erlendum uppruna velkomin með skipulögðum hætti.  Verkefnið hefur skilað góðum árangri og verður innleitt í öðrum grunnskólum í Vesturbæ.

6. Unglingar Vesturbæjar. Unglingar sem sækja og stunda hvers konar félags- og íþróttastarf í Vesturbænum eru til fyrirmyndar.  Þau hafa í gegnum árið unnið til fjölda viðurkenninga og lagt sitt af mörkum til samfélagsins.  Þau hafa t.d. staðið sig vel í hæfileikakeppninni Skrekk, staðið fyrir söfnun til hjálparstarfs og náð góðum árangri í íþróttastarfi.

7. Geðheilbrigðisdagurinn 10. október. Gott samstarf hefur tekist milli Hagaskóla og Vesturgarðs við að styðja ungt fólk til þátttöku í deginum og leggja sitt af mörkum til að auka skilning á geðheilbrigðismálum.

8. Ægisíðan. Reykjavíkurborg hefur staðið myndarlega að uppbyggingu Ægissíðunnar.  Þar er nú að finna frábæra aðstöðu til hjólreiða og göngu, verið er að byggja upp menningarminjar á borð við sjóvarnargarð og grásleppuskúra og svo má finna margvíslegan fróðleik á upplýsingaskiltum sem búið er að setja upp víða.  Hverfisráð Vesturbæjar hefur unnið markvisst að þeirri uppbyggingu.

9. Lynghagaróló. Vinafélagið Grímur hefur tekið að sér umsjón með leiksvæðinu við Lynghaga.  Íbúar hafa getað haft áhrif á hvernig hann nýtist.  Hverfisráð Vesturbæjar hefur stutt frumkvæði íbúa og meðlima vinafélagsins. 

10. Sumardagurinn fyrsti. Ein myndarlegasta skrúðgangan á sumardeginum fyrsta er farin á ári hverju í Vesturbænum.  Frístundamiðstöðin Frostaskjól skipuleggur hana í samstarfi við Ægisbúa, KR og fjölda annarra aðila. 

Vinsamlega sendu okkur ábendingu um fleiri stolt í Vesturbæ á netfangið: vesturgardur@reykjavik.is



Sendu inn ábendingu eða hugmynd - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögregla í Vesturbæ