Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Löggæsla í Vesturbæ Reykjavíkur

Frá lögreglustöðinni á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík (lögreglustöð 5) er sinnt verkefnum vestan Snorrabrautar og á Seltjarnarnesi. Þar eru bæði rannsóknarsvið og almennt svið en átta rannsóknarlögreglumenn starfa á lögreglustöðinni. Helstu stjórnendur eru Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Jóhann Karl Þórisson aðalvarðstjóri og Hákon B. Sigurjónsson lögreglufulltrúi. Ómar Smári er jafnframt stöðvarstjóri.

Íbúar Vesturbæjar njóta eins og aðrir íbúar á höfuðborgarsvæðinu þjónustu öflugra rannsóknardeilda og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar kemur að rannsóknum stærri og flóknari sakamála. Þá er umferðardeild embættisins sýnileg á svæðinu við almennt umferðareftirlit.

Sólarhringslöggæsla er á höfuðborgarsvæðinu alla daga ársins. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu ber að hringja í 112.

Viðtalstímar lögreglunnar eru í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar annan föstudag hvers mánaðar á milli kl. 10:00 og 12:00. Viðtalsbókanir fara fram hjá þjónustufulltrúum í síma 411 1700 eða í gegnum netfangið vesturgardur@reykjavik.is

Netföng: omar@lrh.is johann.karl@lrh.is hakon@lrh.is

Nánari upplýsingar er á heimasíðu lögreglunnar