Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Vesturbær-bærinn okkar

 

vesturbær bærinn okkar

 

Í Vesturbænum er hverfasamstarfsfélag sem ber nafnið Vesturbær – bærinn okkar!  Í félaginu eru um 50 aðildarfélagar sem eru fulltrúar stofnana, félaga og félagasamtaka sem starfa að málefnum allra aldurshópa í Vesturbæ.  Má þar m.s. telja grunnskólana í Vesturbæ og foreldrafélög, heilsugæslu, félagsmiðstöð aldraðra, lögreglu, Vesturgarð, KR, Skátafélagið Ægisbúa, Neskirkju, leikskóla, íbúasamtök Vesturbæjar, félagsmiðstöðina Frostaskjól ofl.  Fyrir þessum stóra hópi fer 9 manna stýrihópur sem valinn er á hverju hausti og fundar mánaðarlega yfir árið. Haldnar hafa verið hverfahátíðir sem hafa haft það að markmiði að efla hverfavitund meðal íbúa sem og að kynna tómstunda- og félagsstarf í hverfinu. Félagið hefur einnig staðið fyrir fræðslufundum fyrir foreldra, ungmenni og aðra íbúa hverfisins.