Fréttir
Í dag, laugardaginn 5. maí héldu íbúasamtök Grafarholts aðalfund sinn og héldu á sama tíma opin íbúafund Grafarholtsbúa með Borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr.
Fundurinn var mjög vel sóttur þrátt fyrir sérstaklega gott veður sem gerði að margir nýttu daginn til útivistar með fjölskyldunni...
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá alla fréttina!
Aðalfundur Íbúasamtaka Grafarholts verður haldinn á morgun, laugardaginn 5. maí kl. 14:00 í Ingunnarskóla.
Dagskrá fundarins
· Erindi borgarstjóra
· Fram: Íþróttastarf í hverfinu og framtíð þess
· Framtíðarsýn Íbúasamtaka Grafarholts
· Spurningar frá íbúum
· Aðalfundur
· Árskýrsla íbúasamtaka Grafarholts
· Ársreikningur lagður fram
· Kosning í stjórn Íbúasamtakanna
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á síðu íbúasamtaka Grafarholts
http://grafarholt.com/forsida/frett/2012/05/05/Adalfundur-ibuasamtakana/
Í dag var mikil stemning í Grafarholti og Úlfarsárdal þegar sumardagurinn fyrsti var haldinn hátíðlegur. Langt er síðan svo gott veður var á sumardeginum fyrsta og því fjöldi manns sem tók þátt í hátíðarhöldunum. Eins og á svo mörgum stöðum á landinu fraus vetur og sumar saman svo að búast má við, ef hjátrúin er rétt að veður sem í dag verði daglegt brauð í sumar!
Gleðilegt sumar Grafarholts- og Úlfarsárdalsbúar!