Fréttir
Félagsmiðstöðin Vitatorg kynnir dagskrá félagsstarfsins fyrir veturinn 2011-2012. Um er að ræða fjölbreytta og áhugaverða dagskrá og eru allir hvattir til að kynna sér hana nánar.
Fundurinn verður haldinn á Kjarvalsstöðum og hefst kl. 20. Helstu málefni hverfisins verða rædd og sagt frá starfi félagsins en einnig munu rithöfundar búsettir í Hlíðum, Vigdís Grímsdóttir og Sigurður Pálsson, lesa upp úr bókum sínum.
Reykjavíkurborg óskar nú eftir hugmyndum á vefnum Betri Reykjavík til eflingar og fegrunar í hverfum Reykjavíkur. Sett hefur verið upp undirsíða á Betri Reykjavík sem nefnist Betri hverfi. Þar geta íbúar sett inn hugmyndir að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfunum og stutt hugmyndir annarra eða hafnað þeim.