Fréttir
Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis sendir hverfisbúum hugheilar jólakveðjur og þakkar ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
Reykjavíkurborg óskar nú eftir hugmyndum á vefnum Betri Reykjavík til eflingar og fegrunar í hverfum Reykjavíkur. Sett hefur verið upp undirsíða á Betri Reykjavík sem nefnist Betri hverfi. Þar geta íbúar sett inn hugmyndir að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfunum og stutt hugmyndir annarra eða hafnað þeim.
Það var rífandi stemning á 25 ára afmæli félagsmiðstöðvarinnar í Hvassaleiti. Sjálfur Raggi Bjarna settist við píanóið og lék og söng sín þekktustu lög.