Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts

Leikskólabörn

Hlutverk Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts er að; sinna velferðarþjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, daggæsluráðgjöf, frístundaráðgjöf og forvarnarstarfi auk almennrar upplýsingagjafar um starfsemi Reykjavíkurborgar. Framangreindum þjónustuþáttum er sinnt á grundvelli þjónustusamninga við Íþrótta- og tómstundasvið, Leikskólasvið, Menntasvið og Velferðarsvið Reykjavíkur.

Á Þjónustumiðstöðinni er unnið á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Meginmarkmið með starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar er:

• Að þjónusta verði aðgengilegri og að íbúar geti snúið sér á einn stað með erindi sín.
• Markviss þjónusta með þverfaglegu samstarfi og samþættingu verkefna.
• Efling félagsauðs í hverfum og aukið samstarf við íbúa, félagasamtök og aðra í hverfinu.
• Búa borgina undir framtíðina til þess meðal annars að hún geti tekið við fleiri verkefnum frá ríkinu.

Markmið með auknu samstarfi á sviði félags-og skólaþjónustu er að veita heilstæðari og metnaðarfyllri þjónustu til skóla, einstaklinga og fjölskyldna í hverfinu.
Til að þjónustan verði sem best er lögð áhersla á samvinnu við þá sem til þjónustumiðstöðvarinnar leita.

Vegna skólaþjónustu má vænta :

• Ráðgjafar og handleiðslu til þeirra sem koma að málefnum barna, hvort sem um er að ræða starfsfólk skóla eða foreldra.
• Aðstoðar við að koma á samvinnu milli heimilis og skóla.
• Sálfræðilegarar greiningar og ráðgjafar til foreldra.

Vegna félagsþjónustu má vænta :

• Að heildarsýn verði höfð að leiðarljósi í vinnslu mála er varða einstaklinga og
fjölskyldur.
• Félagslegrar ráðgjafar til einstaklinga og fjölskyldna.
• Hjálp til sjálfshjálpar.

Starfsemi þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts:

Þjónustumiðstöðin samanstendur af þremur starfsstöðvum sem hver um sig gegnir lykilhlutverki í þjónustu við íbúa.

Á skrifstofunni í Hraunbæ 115 , starfar þverfaglegur hópur sérfræðinga og þar er unnið með allar umsóknir og tilvísanir varðandi þjónustu við íbúa, ráðgjöf og stuðning auk fleiri verkefna. Þjónustumiðstöðin sinnir félagsstarfi í Hraunbæ 105. Þá er þjónustumiðstöðin með íbúakjarna fyrir geðfatlaða að Hraunbæ 107a og b og Þórðarsveig 1.

Hraunbær 115

Hraunbæ 115
110 Reykjavík

Sími: 411-1200

Opnunartími er 08:30-16:00 alla virka daga

Netfang: arbaer-grafarholt@reykjavik.is

Fax - 411-1299