Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Grafarholt og Úlfarsárdalur

Reynisvatn, Hólmsheiði, Paradísardalur, Leirdalur, Úlfarsárdalur, Úlfarsfell
baugar, brautir, geislar, stígar, brunnar.
Grafarholt

Grafarholt og Úlfarsárdalur er nýjasta hverfi borgarinnar með tæplega 5.500 íbúa á 2.280 heimilum. Hverfið hefur byggst upp á síðastliðnum áratug og er enn í uppbyggingu.

Það sem helst einkennir íbúasamsetningu hverfisins er ungt barnafólk. Hverfið er afar barnmargt en börn á aldrinum 0-12 ára eru 25,2% íbúa á meðan meðaltalið fyrir alla Reykjavík er 16,7%. Eldri borgarar eru að sama skapi nokkuð færri eða 6,5% íbúa en til samanburðar þá er það hlutfall 10,7% fyrir borgina í heild.

Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna og í göngufæri við hverfið eru náttúruperlur eins og Úlfarsfellið, Reynisvatn og Hólmsheiðin. Hverfið státar einnig af metnaðarfullu starfi í þremur leikskólum, tveimur grunnskólum og tveimur frístundaheimilum, öflugri félagsmiðstöð og íþróttafélaginu Fram.

Reykjavíkurborg rekur víðtæka þjónustu í hverfinu, meðal annars í gegnum Þjónustumiðstöð Árbæjar sem staðsett er að Hraunbæ 115.
.