Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hverfastarf

Hverfastarf

Grafarholt ogÚlfarsárdalur eru vaxandi hverfi með virkt hverfastarf. Í hverfinu starfa öflug íbúasamtök sem koma að framkvæmd hina ýmsu uppákoma og hverfahátíða. Hér má sérstaklega nefna 13. gleði, Sumardaginn fyrsta og Skautadaginn mikla en þátttaka íbúa hefur verið mjög góð í öllu því sem boðið hefur verið uppá í hverfinu.

Hverfið státar af fallegri kirkju og öflugu kirkjustarfi.  Í Guðríðarkirkju er starfandi kirkjukór, barnakór, KFUM og K, bænastund fer fram í salnum að Þórðarsveigi 3, á hverju fimmtudagsmorgni kl.10:00  og margt fleira. Nánari upplýsingar um safnaðarstarf Guðríðarkirkju má nálgast með því að smella hér.

Í hverfinu starfar íþróttafélagið Fram og rekur öflugt yngriflokkastarf í knattspyrnu, handbolta og Tae-kwon-do. Auk þess
rekur félagið íþróttaskóla í íþróttahúsi Ingunnarskóla fyrir 3-6 ára börn á laugardagsmorgnum yfir vetratímann.
Yfir sumartímann rekur Fram íþróttaskóla, fótbolta- og handboltaskóla.
Handbolta og Tae-kwon-do æfingar fara fram í Ingunnarskóla en æfingar í fótbolta
eru í Egilhöll yfir vetrartímann en í Leirdalnum yfir sumartímann. Nánari upplýsingar um starfsemi Fram má finna með því að smella hér.

Heilsugæsla Árbæjar þjónustar hverfið en hún er til húsa að Hraunbæ 105 á efri hæð. Nánari upplýsingar um Heilsugæsluna er að finna með því að smella hér.

Löggæsla í Grafarholt heyrir undir stöð fjögur hjá Lögreglu höfuðborgarsvæðisins og hefur hún aðsetur að Völuteigi 8 í Mosfellsbæ og á Krókhálsi 5b í Árbæ. 
Helstu stjórnendur eru Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Eiður H. Eiðsson aðalvarðstjóri og Einar Ásbjörnsson lögreglufulltrúi.  Árni Þór sem er jafnframt stöðvarstjóri, og Einar hafa aðsetur í Mosfellsbæ en Eiður í Árbæ.
Almennum fyrirspurnum og upplýsingum til lögreglu er hægt að koma á framfæri í síma 444-1180 allan sólarhringinn og
fyrirspurnum um rannsóknir mála í síma 444-1190 á skrifstofutíma.

Neyðar og aðstoðarsími lögreglu er 112

Ábendingar um efni á síðurnar um hverfastarf í Grafarholti og Úlfarsárdal má senda með því að smella hér.


Þjónustumiðstöðin Árbæ og Grafarholti

Þjónustumiðstöð Árbæjar, Grafarholts og Úlfarsárdals

Hraunbæ 115

110Reykjavík

Sími: 411 1200

Fax: 411 1299

arbaer-grafarholt@reykjavik.is

Opnunartími: 08:30 - 16:00


Sendu inn hugmynd eða ábendingu - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögreglan í Grafarholti og Úlfarsárdal