Framkvæmdir í Grafarholti og Úlfarsárdal 2010

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í hverfinu á árinu 2010
Sæmundarskóli
- Unglingaálma, íþróttasalur og búningsherbergi verða tekin í notkun.
Úlfarsárdalur
– Áframhaldandi uppbygging hverfis, einkum er um að ræða gönguleiðir, ræktun, gróðursetningu og frágang.
Umferðaröryggismál
– Gönguleiðir skólabarna, 30km hverfi og endurbætur á vástöðum. Verið er að vinna að greiningu á þörf fyrir aðgerðir ásamt forgangsröðun framkvæmda í borginni í heild á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs.
Verkefni sem urðu fyrir valinu í íbúakosningu
– Trimmtæki Leirdal.
– Nestisaðstaða í Leirdal.
– Gróðursetning í hverfinu í samráði við hverfisráð.
Undirgöng undir Reynisvatnsveg við Jónsgeisla og stígur meðfram Reynisvatnsvegi frá Lambhagavegi að stígakerfi við Vesturlandsveg.
Gengið verður frá yfirborði Reynisvatnsvegar austan Grafarholts.