Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Nágrannavarsla

 

Nágrannavarsla


Hvað er Nágrannavarsla?
• Nágrannavarsla er skipulögð forvörn sem byggir á því að íbúar taki höndum saman,
 til þess að sporna gegn innbrotum, eignatjóni og auka öryggi í hverfinu. 
• Nágrannavarsla byggir á samskiptum nágranna á milli, s.s. láta nágranna vita ef fara á
 í burtu í lengri tíma og hafa vakandi auga með húsi nágrannanna og grunsamlegum mannaferðum í götunni. 
• Hjá lögreglunni eru til mörg dæmi þess að mál hafi verið upplýst með hjálp góðra
  granna sem gátu gefið góða lýsingu á mönnum eða bifreiðum. Samvinna af þessu tagi er vel þekkt erlendis
 og þykir hafa gefið góða raun. 

Hvernig virkar Nágrannavarsla?
• Nágrannavarsla virkar þegar allir taka þátt og eru virkir í eftirliti með umhverfi sínu.
• Götustjórar eru valdir, þeirra hlutverk er að miðla upplýsingum til íbúa og skipuleggja nánari útfærslu
 á verkefninu í sinni götu.

Hvernig getur gatan mín tekið þátt í verkefninu?
• Verkefnið byggir á frumkvæði og vilja íbúa á að taka þátt í verkefninu. 
• Fulltrúi íbúa hefur samband við þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts og óskar eftir því að taka þátt í verkefninu.
• Haldinn er kynningarfundur fyrir íbúa þar sem verkefnið er kynnt og nágrannagæslan er formlega stofnuð.


Þjónustumiðstöðin Árbæ og Grafarholti

Þjónustumiðstöð Árbæjar, Grafarholts og Úlfarsárdals

Hraunbæ 115

110Reykjavík

Sími: 411 1200

Fax: 411 1299

arbaer-grafarholt@reykjavik.is

Opnunartími: 08:30 - 16:00


Sendu inn hugmynd eða ábendingu - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögreglan í Grafarholti og Úlfarsárdal