Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Háaleiti og Bústaðir

Háaleiti, Múlar, Kringlan, Bústaðir, Fossvogur, Smáíbúðahverfi og Blesugróf.

Háaleiti og Bústaðir

Háaleiti og Bústaðir markast meðal annars af Kringlumýrarbraut, Suðurlandsbraut, Reykjanesbraut og sveitarfélaginu Kópavogi. Hverfið felur í sér nokkra minni hverfishluta – Háaleiti, Múla, Kringlu, Bústaði, Fossvog, Smáíbúðahverfi og Blesugróf.

Hverfið er nokkuð fjölmennt og taldi hátt í 14.000 íbúa við síðustu áramót. Af þeim er hátt hlutfall 67 ára og eldri eða 17% íbúa miðað við ríflega 10% að meðaltali í borginni allri. Að auki býr í hverfinu stór hópur fatlaðs fólks.

Háaleiti og Bústaðir státa meðal annars af metnaðarfullu skólastarfi í 15 leik- og grunnskólum, íþróttafélögunum Víkingi og Fram, verslunarmiðstöðinni Kringlunni og fallegu útivistarsvæði í Fossvogsdal.

Reykjavíkurborg rekur víðtækja þjónustu í hverfinu, meðal annars í gegnum Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis að Síðumúla 39.