Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Niðurstaða íbúakosningar í Háaleitis og Bústaðahverfi

Kjóstu í þínu hverfi


Netkosning um forgangsröðun fjármuna til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar fór fram 2. – 14. desember 2009..  Kosið var um forgangsröðun framkvæmda og voru verkefni í flokknum Umhverfi og útivist sett efst í forgangsröð af íbúum í átta hverfum af tíu. Aðrir verkefnaflokkar sem valið stóð um voru Leikur og afþreying og samgöngur.

Í Háaleitis- og Bústaðarhverfi settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu  - Verður framkvæmt í sumar.

b) Trimmtæki í Fossvogsdal  - Verður framkvæmt í sumar.

c) Nestisaðstaða í Garðaflöt við Hólmgarð  - Verður framkvæmt í sumar.

d) Nestisaðstaða í Grundagerðisgarði  - Verður framkvæmt í sumar.

e) Lagfæra opið svæði milli Háaleitisbrautar og Síðumúla  - Verður framkvæmt í haust.