Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hverfisráð Háaleitis- og Bústaða

Hverfisráð Háaleitis og Bústaða hefur aðsetur á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39.

Kjörnir: Til vara:
Gunnar Ingi Gunnarsson Friðþjófur Adolf Ólason
Kristín Erna Arnardóttir Auður Anna Aradóttir
Hörður Oddfríðarson, formaður Ingi Bogi Bogason
Elínóra Inga Sigurðardóttir (frá 18.10.'11) Helgi Þórsson (frá 15.11.'11)
Rúna Malmquist Fanney Birna Jónsdóttir
Áheyrnarfulltrúi VG  
Jóhann Björnsson  Elín Sigurðardóttir.

Um hverfisráð

Hverfisráð eru starfandi í öllum 10 hverfum borgarinnar. Hlutverk þeirra er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þeirra. Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgarstofnana í einstökum hverfum.

Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og eiga að stuðla að eflingu félagsauðs í hverfum.

Þá ber hverfisráðunum að stuðla að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfunum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa.

Hverfisráðin eru skipuð fimm fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna


Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða

Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða
Síðumúla 39
108 Reykjavík
Sími: 411 1500
Fax: 411 1599
laugardalur.haaleiti@reykjavik.is
Opnunartími: 08:30-16:00