Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Félagsleg ráðgjöf

Á lífsleiðinni standa flestir frammi fyrir erfiðleikum af einhverju tagi, smáum sem stórum. Fagfólk sem starfar á þjónustumiðstöðvum veita einstaklingum og fjölskyldum ráðgjöf og byggist þjónustan á að koma til móts við þarfir þeirra sem þangað leita.

Markmið með félagslegri ráðgjöf er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar.

Ráðgjafar á þjónustumiðstöðvum veita upplýsingar um réttindi/þjónustu, ráðgjöf eða stuðning. Einnig geta ráðgjafar veitt upplýsingar um möguleika á annarri þjónustu svo og vísað fólki í þau úrræði sem henta hverjum og einum.

Félagsleg ráðgjöf tekur m.a. til ráðgjafar vegna:

• Atvinnuleysis
• Veikinda
• Húsnæðisvanda
• Fjárhagsvanda
• Fötlunar
• Öldrunar
• Málefna útlendinga
• Málefna barna og ungmenna
• Fjölskylduvanda
• Áfengis- og vímuefnavanda

Allir með lögheimili í Reykjavík 18 ára og eldri sem þurfa á ráðgjöf eða upplýsingum að halda um félagsleg réttindi eða þjónustu, geta leitað til Þjónustumiðstöðva í sínu hverfi. Lögð er áhersla á styðja fólk til sjálfshjálpar og er stuðningi hætt þegar ekki er lengur talin þörf fyrir hann.

Til þess að panta tíma hjá félagsráðgjafa hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis er haft samband við afgreiðslu í síma 411-1500.