Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sérfræðiþjónusta leik- og grunnskóla

Markmið sérfræðiþjónustu leikskóla-og grunnskóla er að veita markvissa og heildtæka þjónustu á þverfaglegum grunni til að mæta sérþörfum barna og fjölskyldna þeirra. Þjónustan er veitt á grundvelli þjónustusamnings á milli Mennta- og leikskólasviðs, Velferðarsviðs og Íþrótta- og tómstundasviðs . 

Eftirfarandi teymi heyra undir sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla:

Skólateymi:  sem skipt er upp eftir skólastigum, það er í leikskólateymi og grunnskólateymi. Hlutverk teymanna er að vera vettvangur fyrir faglega umfjöllun um málsmeðferð, þar er jafnframt ákveðið hvaða sérfræðingur/ar taki erindið að sér.  Tilvísanir til skólateyma berast frá leik- og grunnskólum á þar til gerðum eyðublöðum í samvinnu við og með undirskrift forráðamanns.  

Leikskólateymi: er þverfaglegt teymi sem í sitja sálfræðingar, sérkennsluráðgjafar, leikskólaráðgjafi og félagsráðgjafi. Helstu verkefni sérfræðinga leikskólateymis eru Sérkennsluráðgjöf og sálfræðiþjónusta.

 

Grunnskólateymi:  er þverfaglegt teymi sem í sitja sálfræðingar, kennslu- og sérkennsluráðgjafi, félagsráðgjafar/unglingaráðgjafi og frístundaráðgjafi. Helstu verkefni sérfræðinga grunnskólateymis eru Sérkennsluráðgjöf og sálfræðiþjónusta.

 

Kennslu- og sérkennsluráðgjöf: sérkennsluráðgjafar sinna ráðgjöf um sérkennslu eða sértæka aðstoð við barn í leik- og grunnskóla, þar með talið aðstoð við gerð einstaklingsnámsskráa. Kennsluráðgjöf felur m.a. í sér ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla um kennsluhætti og skólaþróun.

 

Sálfræðiþjónusta: sálfræðingar sinna frumgreiningum þegar grunur vaknar um frávik í þroska barna á leik- og grunnskólaaldri. Auk þess veita sálfræðingar ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla og eftir atvikum skammtímameðferð vegna frávika í vitsmuna, tilfinninga- eða félagsþroska barns.



Sendu inn hugmynd eða ábendingu - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögregla í Háaleitis- og Bústaðahverfi