Þjónusta fyrir börn
Liðveisla: Markmið með liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun og stuðla að þátttöku í félagsstarfi. Liðveisla er veitt fötluðu fóki frá 6 ára aldri. Sótt er um á þjónustumiðstöðvum borgarinnar og má einnig nálgast umsóknareyðublað á rafrænni Reykjavík.Þjónusta er veitt samkvæmt einstaklingsbundu mati á þjónustuþörf og reglum Reykjavíkurborgar um stuðningsþjónustu.
Stuðningsfjölskyldur: Fjölskyldur fatlaðra barna geta sótt um stuðningsfjölskyldu hjá þjónustumiðstöðinni Síðumúla 39
Skammtímavistun: Upplýsingar um skammtímavistanir eru gefnar á Þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar.
Rjóður: Rjóður er hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik og langveik fötluð börn, er á vegum Landspítala Háskólasjúkrahúss. Upplýsingar í síma: 543-9260.
Trúnaðarmaður fatlaðra: Trúnaðarmaður fatlaðra er starfandi í hverju sveitarfélagi en í Reykjavík hefur trúnaðarmaður fatlaðra aðsetur hjá Sjónarhóli, ráðgjafarmiðstöð að Háaleitisbraut 13. Hlutverk trúnaðarmanns er að gæta hagsmuna fatlaðs fólks. Fatlaðir einstaklingar og aðstandendur þeirra geta leitað til trúnaðarmanns. Krisín J. Sigurjónsdóttir er trúnaðarmaður fatlaðra í Reykjavík og er símanúmerið hennar 588-1133.
Systkinasmiðjan: Markmið Systkinasmiðjunnar er að að veita systkinum barna með sérþarfir tækifæri til að hitta önnur systikini í skipulögðu og skemmtilegu umhverfi. Börnunum er veitt innsýn í það hvernig megi takast á við þær margbreytilegu aðstæður sem fylgja því að eiga systkini með sérþarfir. Börnin fá tækifæri til að fræðast um fötlun og/eða veikindi systkina sinna og að hitta önnur börn sem búa yfir svipaðri reynslu. Upplýsingar um Systkinasmiðjuna eru á vefslóðinni http://verumsaman.is/
Sjónarhóll: Er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir.Markmiðið er að fjölskyldur barna með sérþarfir njóti jafnréttis og sambærilegra lífskjara á við aðrar fjölskyldur. Foreldraráðgjafar Sjónarhóls veita ráðgjöf og leiðsögn um möguleika og úrræði í kerfinu. Ráðgjöfin er veitt á forsendum foreldra. Greining þarf ekki að liggja fyrir og tilvísanir eru óþarfar. Þjónusta Sjónarhóls er endurgjaldslaus.Upplýsingar í síma: 535-1900 eða á vefslóðinni www.sjonarholl.net
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins: Þjónar fötluðum börnum og unglingum alls staðar af landinu.Þar fara fram greiningar á þroska og færni barna og unglinga með fatlanir og önnur frávik í þroska. Veitt er ráðgjöfmeð það að markmiði að draga úr afleiðingum þroskaraskana eins og kostur er. Nánariupplýsingar eruheimasíðu Greiningarstöðvarinnar á vefslóðinni www.greining.is
Frístundaklúbburinn Sólheimum (Hofið) – Sólheimar 21a: Frístundaklúbburinn Hofið er staðsett í Sólheimum 21a (húsnæði skátafélags Sólbúa).Hofið veitir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 10-16 ára þjónustu eftir að skóladegi lýkur og er opið alla virka daga til klukkan 17:00. Hægt er að sækja um í Frístundaklúbbnum Hofinu í gegnum Rafræna Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Eyþórsdóttir í síma 664-7774. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir til hennar á netfangið sigrun.eythorsdottir@reykjavik.is
Sundnámskeið fyrir börn: Sundnámskeið fyrir börn er haldið í sundlaug Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Skráning fer fram í íþróttahúsi ÍFR í síma 561-8226. Umsjónarmaður með námskeiðinu er Júlíus Arnarsson íþróttakennari. Nánari upplýsingar og skráning er á á heimasíðu ÍFR, http://www.ifr.is/
Tónstofa Valgerðar, Hátúni 12: Í Tónstofu Valgerðar er tónlistanám í boði fyrir fötluð börn.Tónstofa Valgerðar er meðal annars með tónlistarnám fyrir nemendur í Öskujuhlíðarskóla. Umsóknir má nálgast á staðnum og á rafrænni Reykjavik. Tekið er við umsóknum allt árið.
Unglingastarf Einstakra barna: Í unglingastarfi Einstakra barna er hugsunin að undir handleiðslu Freyju Haralds hittist einstök ungmenni sem eigi skemmtilega kvöldstund saman og njóta þess að vera í umhverfi þar sem fátt þarf að útskýra. Starfið er ætlað einstökum ungmennum en vinir, systkini og aðstoðarmenn eru einnig velkomnir. Það er þó eitt, foreldraaðgangur bannaður!!! Til þess að Freyja geti gert sér grein fyrir fjölda hópanna biður hún fólk um að tilkynntuð komu sína á neetfangið freyja@forrettindi.is. Ef það eru einhverjar spurningar er velkomið að hafa samband við Freyju í gegnum ofangreint netfang eða í síma 6912722.Nánari upplýsingar um ungslingastarfið eru á heimasíðu Einstakra barna á vefslóðinnihttp://www.einstokborn.is/
Busl: Er unglingastarf Sjálfsbjargar, fyrir 13-17 ára unglinga. Hér gefst unglingu tækifæri til að hittast og skemmta sér í góðum félagsskap. Buslarar hittast tvisvar í mánuði yfir vetrartímann. Hægt er að fá nánari upplýsingar á skrifstou Sjálfsbjargar í síma 550-0300
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar: Í Tónskóla Sigursveins Engjateigi 1, 105 Reykjavík, er tónlistarkennsla við allra hæfi.Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 568 5828.
Unglingasmiðja: Unglingasmiðjurnar eru ætlaðar ungmennum á aldrinum 13-18 ára sem eiga í persónulegum og félagslegum erfiðleikum. Markmiðið með starfinu er að efla félagslega færni, rjúfa félagslega einangrun og auka sjálfstraust, kjark og þor þeirra sem í smiðjunum dvelja.Starfsemi með ungmennunum fer fram seinnipart dagsins, tvisvar í viku.Áhersla er á samstarf og hópavinnu. Vikulegir hópfundir eru í þeim tilgangi að auðvelda ungmennunum að tjá sig af einlægni, auka hæfni þeirra til að setja sig í spor annarra og læra að treysta hvert öðru.Upplýsingar veita Hervör Alma í síma 8223043 og Þórunn Ólý í símum5575595 og 8223099.
Tryggingastofnun ríkisins: Fólk er hvatt til að kanna rétt sinn og barna sinna hjá TR á vefslóðinni www.tr.iseða í síma: 560-4400 eða á
Hjálpartækjamiðstöðin: Hjálpartækjamiðstöðin veitir ráðgjöf um hjálpartæki, annast viðgerðir á hjálpartækjum, sér um afgreiðslu hjálpartækja, annast sérsmíði og viðhald hjálpartæka auk fleiri verkefna. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 560-4600 og á vefslóðinni www.htm.is .
Össur: Össur sér um alhliða stoðtækjaþjónustu, svo sem að sérsmíða skó, spelkur, gervilimi og fleira.Nánari upplýsingar eru veittar í síma: 515-1300 og á veffanginuwww.ossur.is.
Stoð: sér um alhliða stoðtækjaþjónustu, svo sem að sérsmíða skó, spelkur og fleira. Einnig selur Stoð úrval afvörum fyrir fólk með sérþarfir eins og t.d. lyfturúm, sturtubekki, mataráhöld og fleira. Nánari upplýsingar eru veittarí síma: 565-2885 og á veffanginu www.stod.is .
Hitt húsið: Allt félagsstarf í hinu húsinu er fyrir fatlað fólk á aldrinum 16-25 ára, en fólk með þroskafrávik hefur verið í miklum meirihluta.Það kostar ekkert að taka þátt.Hitt húsið er staðsett í Pósthússtræti 3-5 og símanúmerið þar er 411-5500.Heimasíðan er hitthusid.is og netfangið er hitthusid@hitthusid.is.
Hvað er í boði á sumrin?
Fötluðum börnum stendur til boða að taka þátt í eins mörgum frístundaúrræðum á vegum ÍTR sem þau og foreldrar þeirra óska eftir. Öll börn verða þó að taka að minnsta kosti 4 vikur í sumarfrí.Sumarfrístund eru í boði fyrir 10-16 ára í Tónabæ og fyrir 7-16 ára í Vesturhlíð, í Hofinu er sumarfrístund fyrir fötluð börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára, en meðal almennra úrræða má nefna að haldin er sumarfrístund fyrir 7-10 ára í Langholtshöll og í Tónabæ fyirr 7-10 ára.Frístundaklúbburinn Hofið er opin frá 7.45-17.15 á sumrin. Nánari upplýsingar eru veittar hjá ÍTR.
Sumarbúðir eingöngu ætlaðar fötluðum
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra: Rekur sumarbúðir fyrir börn og ungt fólk á aldrinum 6-23 ára í Reykjadal og í Laugaland í Holtum.Upplýsingar um sumarbúðirnar eru veittar í síma 535-0900 og á veffanginu http://www.slf.is. Dvölin hefst í lok maí og stendur fram í miðjan ágúst. Í Reykjadal og Laugalandi er raðað niður í hópa með tilliti til aldurs og fötlunar. Um er að ræða vikudvöl. Umsóknarfrestur vegna sumardvalar rennur út 1. mars og umsóknir eru á heimasíðu og skrifstofu félagsins. SLF rekur einnig helgardvalir á veturna fyrir fötluð börn.
Styrktarfélag vangefinna: Botn í Eyjafirði, upplýsingar: í síma Styrktarfélags vangefinna: 551-5941 , forstöðumaður: 843-0777 eða http://www.styrktarfelag.is
Vatnaskógur: Gauraflokkur fyrir stráka á aldrinum 10-12 ára emð ADHD.
Boðið er upp á dvöl í eina viku í vatnaskógi. Nánari upplýsingar eru fáanlegar á http://www.kfum.is/gauraflokkur.