Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þjónusta fyrir fullorðna

Frekari liðveisla: Frekari liðveisla er þjónusta sem fatlað fólk getur sótt um hjá þjónustumiðstöðinni Síðumúla 39.

Félagsleg heimaþjónusta: Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að gera fólki kleift að búa á eigin heimili þrátt fyrir að erfiðleikar steðji að, svo sem vegna veikinda, fötlunar eða fjölskylduaðstæðna. Kvöld- og helgarþjónusta er fyrir alla þá sem, samkvæmt einstaklingsbundnu mati, þurfa á félagslegri heimaþjónustu að halda utan dagvinnutíma.Kvöld- og helgarþjónusta er í formi innlits og stuttrar viðveru. Hægt er að sækja um félagslega heimaþjónustu á þjónustumiðstöðvum borgarinnar, en umsóknum þarf að skila á sérstöku eyðublaði sem má nálgast á heimasíður Reykjavíkurborgar, rafræn Reykjavík.

Liðveisla:Markmið með liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun og stuðla að þátttöku í félagsstarfi. Liðveisla er veitt fötluðu fólki frá 6 ára aldri. Sótt er um á þjónustumiðstöðvum borgarinnar og má einnig nálgast umsóknareyðublað á rafrænni Reykjavík.Þjónusta er veitt samkvæmt einstaklingsbundu mati á þjónustuþörf og reglum Reykjavíkurborgar um stuðningsþjónustu.

Trúnaðarmaður fatlaðra:Trúnaðarmaður fatlaðra er starfandi í hverju sveitarfélagi en í Reykjavík hefur trúnaðarmaður fatlaðra aðsetur hjá Sjónarhóli, ráðgjafarmiðstöð að Háaleitisbraut 13. Hlutverk trúnaðarmanns er að gæta hagsmuna fatlaðs fólks. Fatlaðir einstaklingar og aðstandendur þeirra geta leitað til trúnaðarmanns. Kristín J. Sigurjónsdóttir er trúnaðarmaður fatlaðra í Reykjavík og er símanúmerið hennar 588-1133.

Fjölmennt: Fjölmennt er miðstöð símenntunar fyrir fatlað fólk 20 ára og eldri.Í Fjölmennt er boðið upp á námskeið, þar sem áhersla er lögð á almenna fræðslu. Einnig er veitt á fræðsla sem tengist atvinnumálum, búsetumálum, félagsstörfum, líkamsrækt og heilsueflingu, list- og verkgreinum,  tómstundum og öðrum þáttum sem er nemendum mikilvæg. Stefna Fjölmenntar er að gera fólki með fötlun kleift að taka þátt í lífi og starfi í samfélaginu á við aðra þjóðfélagsþegna. Námskeiðin eru ýmist kennd einn eða tvo daga í viku, og stendur hvert námskeið í eina önn. Skila þar inn umsókn sem má nálgast á heimasíðu Fjölmenntar á vefslóðinni www.fjolmennt.is. Umsóknir fyrir haustönn þurfa að berast fyrir 2. maí og fyrir vorönn 20. nóvember ár hvert. Nánari upplýsingar er hægt að nálgastá heimasíðu Fölmenntar í síma: 511-1300.

HRINGSJÁ:Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Almenn markmið með starfi Hringsjár er að nemendur öðlist færni til að finna og takast á við störf við hæfi á almennum vinnumarkaði, að þeir öðlist færni til að takast á við nám í almennum framhaldsskólum,að þeir öðlist sjálfstraust og raunhæft sjálfsmat en ekki síst að þeir öðlist aukin lífsgæði. Um er að ræða námskeið og síðan í flestum tilfellum fullt nám í þrjár annir.Upplýsingar eru veittar í síma 552-9380.

MS dagvist og endurhæfing:Dagvist MS félags Íslands veitir MS sjúklingum umönnun og endurhæfingu. Þjónusta er veitt einstaklingum sem sökum viðverandi fötlunar eiga ekki afturkvæmt út í atvinnulífið ogþurftu aðstoð við daglegar athafnir, en þurfa ekki á bráðaþjónustu að halda.MS félag Íslands er til húsa að Sléttuvegi 5, Reykjavík.Dagvist og endurhæfing MS er fyrst og fremst starfrækt fyrir einstaklinga með MS sjúkdóm og hafa þeir greiðan aðgang að þjónustunni óháð aldri. Það fer eftir aðstæðum stofnunarinnar hverju sinni hverjum hún veitir þjónustu auk einstaklinga með MS.Þar ræður hjúkrunarþyngd mestu.Upplýsingar eru veittar í síma 568-8620.

Klúbburinn Geysir: Allir sem eiga eða hafa átt við geðræn veikindi að stríða geta orðið félagar í klúbbnum Geysi.Klúbburinn hefur það að markmiði að hvetja félaga til þátttöku og virkni.Í klúbbnum bera allir sameiginlega ábyrgð á rekstrinum. Klúbburinn byggir starfsemi sína á vinnumiðuðum degi. Bera félagar í Geysi sjálfir ábyrgð á mætingu og er þeim frjálst að mæta að vild. Félagar og starfsfólk skipta með sér verkum og ákveða í sameiningu hvaða störf þarf að inna af hendi. Félagar ákveða í hvaða deildum innan klúbbsins þeir vilja vinna og á hvaða tímum.Allt starf innan klúbbsins er unnið í sjálfboðavinnu og skiptist starfið í eldhúsdeild, viðhaldsdeild og móttöku. Í Geysi er ennfremur rekin starfsleit en þar vinna félagar og starfsmenn að því að ná tengslum við vinnuveitendur. Þá eru gerðir ráðningarsamningar sem vara í sex til níu mánuði. Þeim sem óska eftir að fákynning á starfsemi Geysis er bent á að hringja í síma 551-5166.

Múlalundur:Múlalundur er stærsta og elsta vinnustofa landsins þar sem öryrkjar njóta endurhæfingar ásamt því að framleiða og selja mest allra af bréfabindum og lausblaðabókum.Á Múlalundi hefur fólk með skerta starfsorku átt þess kost að vinna létt störf við hagnýtan iðnað þar sem vinnutími getur verið sveigjanlegur.

Ásstyrktarfélag:Ás styrktarfélag veitir fötluðu fólki þjónustu í formi búsetu, dagþjónustu og atvinnuúrræða. Vinnustaðirnir/dagþjónusta eru: Ás vinnustofa, Bjarkarás, Lækjarás og Lyngás.Ás styrktarfélag rekur 11 sambýli víðs vegar um borgina, en þau sambýlinu eru staðsett við: Auðarstræti, Barðavog, Blesugróf, Fýlshóla, Háteigsveg, Langagerði, Láland og í Víðihlíð. Nánari upplýsingar um Ás styrktarfélagmá nálgast á vefslóðinni http://styrktarfelag.is/verkefni/

Þekkingarsetur Áss: Þekkingarsetur um félagstengsl og kynímynd er á vegum Áss styrktarfélags. Boðið er upp á úrval námskeiða sem er sniðin að þörfum og óskum fólks hverju sinni. Tímalengd hvers námskeiðs er samkomulagsatriði en getur varað frá hálfum degi upp í nokkur skipti. Þekkingarsetrið veitir ráðgjöf til einstaklinga um þætti er varða kynfræðslu, samskipti og sambönd.  Hver tími er 50 mínútur og kostar kr. 5.500. Þá geta stofnanir óskað eftir ráðgjöf og er verið kr. 7.500. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ási styrktarfélagi í síma 561-5919 og eru á vefslóðinni http://styrktarfelag.is/verkefni/. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið: maria@styrktarfelag.is .

Hitt húsið:Allt félagsstarf í hinu húsinu er fyrir fatlað fólk á aldrinum 16-25 ára, en fólk með þroskafrávik hefur verið í miklum meirihluta.Það kostar ekkert að taka þátt.Hitt húsið er staðsett í Pósthússtræti 3-5 og símanúmerið þar er 411-5500.Heimasíðan er hitthusid.is og netfangið er hitthusid@hitthusid.is.

Félagsstarf fyrir Reykvíkinga á öllum aldri er í boði í fjórtán félagsmiðstöðvum víðsvegar um borgina og í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Íbúar geta sótt þjónustu óháð því hvar þeir búa í borginni.Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfseminni en meðal annars er boðið uppá myndlist, klúbbastarf, spilamennsku, skoðunarferðir, dans og leikfimi. Einnig eru ýmsir viðburðir árlegir og/eða tilfallandi, svo sem grillveislur, haustfagnaðir, þorrablót, dansleikir og leikhúsferðir. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Sumarbúðir eingöngu ætlaðar fötluðum:

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra:Rekur sumarbúðir fyrir börn og ungt fólk á aldrinum 6-23 ára í Reykjadal og í Laugaland í Holtum.Upplýsingar um sumarbúðirnar eru veittar í síma 535-0900 og á veffanginu http://www.slf.is. Dvölin hefst í lok maí og stendur fram í miðjan ágúst. Í Reykjadal og Laugalandi er raðað niður í hópa með tilliti til aldurs og fötlunar. Um er að ræða vikudvöl. Umsóknarfrestur vegna sumardvalar rennur út 1. mars og umsóknir eru á heimasíðu og skrifstofu félagsins. SLF rekur einnig helgardvalir á veturna fyrir fötluð börn.

Styrktarfélag vangefinna: Botn í Eyjafirði, upplýsingar: í síma Styrktarfélags vangefinna: 551-5941 , forstöðumaður: 843-0777 eða http://www.styrktarfelag.is

Sumarbúðir ÍF 2008 á Laugarvatni: Allar upplýsingar gefa forstöðumenn: Baldur Þorsteinsson í síma 897-9393 Jóhann Arnarson í síma 848-4104.netfang sumarbúðanna: sumarbudir@gmail.comHeimasíða: http://web.mac.com/sumarbudirif

Sumarnámskeið ÍTR: www.itr.is

Halaleikhópurinn – leiklist fyrir alla: Halaleikhópurinn er hópur áhugafólks um leiklist og samanstendur af fötluðum og ófötluðum einstaklingum. Leikhópurinn hefur það að markmiði sínu að iðka leiklist fyrir alla og er öllum opinn. Engin inntökupróf eru í Halaleikhópinn og reynt er að finna öllum verðugt hlutverk. Til að gerast félagi í þessum hópi er hægt að sækja um á heimasíðunni á veffanginu www.halaleikhopurinn.is.

Þjónusta á vegnum Rauða kross Íslands

Vin: Vin er athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr endurinnlögnum á geðdeildir, efla þekkingu okkar og annarra á málefnum geðsjúkra og skapa umhverfi þar sem gagnkvæm virðing og traust ríkir og tekið er tillit til hvers og eins.Gestir í Vin taka virkan þátt í starfseminni sem er margvísleg. Nánari upplýsingar eru veittar í síma561 2612 og 561 2721.

Dvöl: Markmiðið með starfsemi Dvalar er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr fordómum og auka lífsgæði þeirra sem eiga við geðsjúkdóma er að stríða. Gestir koma í athvarfið á eigin forsendum eða með stuðningi annarra og njóta þeirrar þjónustu sem í boði er. Áhersla er lögð á að efla sjálfstæði og virkni gestanna, en jafnhliða eru gestir aðstoðaðir við að leita nýrra leiða, sé þess óskað. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 554-1260

Lækur: Markmið  með starfseminni er að auka lífsgæði og efla andlega, líkamlega og félagslega vellíðan svo og hæfni í daglegri virkni. Aðstaða er til listsköpunar, fjölbreyttrar. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 566-8600 og á veffanginu laekur@redcross.is

Hugarafl: Markmið með þjónustu Hugarafls er að bjóða fólki með geðræna erfiðleika og aðstandendum þeirra eftirfylgd og ráðgjöf.Einnig að vinna að verkefnum sem bætt geta geðheilbrigðisþjónustu, vinna gegn fordómum, miðla notendasýn, skapa hlutverk og þátttöku einstaklingsins í þjóðfélaginu og fleira.Meðlimir Hugarafls miðla reynslu sinni og varpa ljósi á batahvetjandi leiðir og hittast á föstum fundum á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13-15. Þeir sem vilja taka þátt í fundunum verða að hafa samband og tilkynna komu sína,svo hægt sé að kynna markmið og vinnulag hópsins. Hugarafl er með höfuðstöðvar að Bolholti 4 og er síminn þar 414-1550.

Geðhjálp: Landssamtökin Geðhjálp eru hagsmunasamtök þeirra sem eiga eða hafa átt við geðraskanir að etja, aðstandenda þeirra og allra þeirra er láta sig geðheilbrigðismál varða. Í húsi félagsins að Túngötu 7 í Reykjavík er félagsmiðstöð. Þar erhægt að fá ráðgjöf og leita upplýsinga. Félagsmiðstöðin er opin alla virka daga frá 9-16. Þar kemur fólk saman til að njóta samvista hvort við annað í notalegu umhverfi, lesa blöðin og leysa lífsgátuna.  Boðið er uppá hafragraut á morgnana og heitan mat í hádeginu gegn vægu gjaldi.  Nánari upplýsingar eru veittar í síma 570 1700. 

Tryggingastofnun ríkisins: Fólk er hvatt til að kanna rétt sinn og barna sinna hjá TR á vefslóðinni www.tr.iseða í síma: 560-4400 eða á

Hjálpartækjamiðstöðin: Hjálpartækjamiðstöðin veitir ráðgjöf um hjálpartæki, annast viðgerðir á hjálpartækjum, sér um afgreiðslu hjálpartækja, annast sérsmíði og viðhald hjálpartæka auk fleiri verkefna. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 560-4600 og á vefslóðinni www.htm.is .

Össur: Össur sér um alhliða stoðtækjaþjónustu, svo sem að sérsmíða skó, spelkur, gervilimi og fleira.Nánari upplýsingar eru veittar í síma: 515-1300 og á veffanginuwww.ossur.is.

Stoð: sér um alhliða stoðtækjaþjónustu, svo sem að sérsmíða skó, spelkur og fleira. Einnig selur Stoð úrval afvörum fyrir fólk með sérþarfir eins og t.d. lyfturúm, sturtubekki, mataráhöld og fleira. Nánari upplýsingar eru veittarí síma: 565-2885 og á veffanginu www.stod.is .