Ferðaþjónusta fatlaðra
Ferðaþjónusta fatlaðra er ætluð til afnota fyrir þá íbúa Reykjavíkur sem eru hjólastólanotendur, blindir og geta eigi notað önnur farartæki. Einnig þeir sem geta ekki nota almenningsvagnaþjónustu vegna annarrar fötlunar og hafa ekki aðgang að eigin faratæki.
Gjald fyrir hverja ferð skal miðast við hálft almennt gjald hjá Strætó bs. þjónustusvæði markast frá Hafnarfirði í suðri að Kjalarnesi í norðri. Gjaldskrá Strætó.
Þeir sem eiga rétt á ferðaþjónustu fatlaðra og eru í framhaldskóla eða háskóla fá ferðaþjónustuna að kostnaðarlausu.
Hámarksfjöldi ferða eru 40, ferðir fram og til baka reiknast sem tvær ferðir.
Íbúar í Laugardal og Háaleiti skila umsóknum um ferðaþjónustu fatlaðra til Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, 108 Reykjavík. Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 411-1500.
Umsókn um ferðaþjónustu fatlaðra má finna hér.
Reglur um ferðaþjónustu fatlaðra má nálgast hér.