Ferðaþjónusta fatlaðra á Norðurlöndum
Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti nýverið að ganga til samninga um tilraunaverkefni er varðar ferðaþjónustu fyrir fatlaða á Norðurlöndunum. Verkefnið, sem er til tveggja ára, er leitt af samtökum hreyfihamlaðra á Norðurlöndum, Nordisk Handikap Forbund, sem Sjálfsbjörg Landssamband fatlaðra á Íslandi á aðild að. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.
Tilgangur verkefnisins er að gera hreyfihömluðum, sem búa í Kaupmannahöfn, Reykjavík, Ósló og Stokkhólmi, kleift að nýta sér ferðaþjónustu fatlaðra í hinum borgunum. Verkefnið nær til þeirra sem þurfa sérútbúinn bíl til að komast leiðar sinnar. Reykvíkingar sem eru bundnir hjólastól á ferðum sínum og dvelja í einhverri þátttökuborganna geta nú pantað ferðaþjónustu fatlaðra á sama hátt og notendur sem búsettir eru í borginni sem ferðast er til. Eins geta íbúar hinna borganna komið til Reykjavíkur og pantað ferðir hjá Ferðaþjónustu fatlaðra í Reykjavík. Þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar veita Reykvíkingum sem vilja nýta sér þjónustuna allar upplýsingar, taka við umsóknum og senda upplýsingar áfram til þeirra borgar sem notandi ferðast til.
Verkefnið gefur hreyfihömluðum sem þurfa sérhæfða akstursþjónustu möguleika á að ferðast á einfaldan máta á ferðalögum sínum í þátttökuborgunum.
Hér má finna upplýsingaplagg um ferðaþjónustu á Norðurlöndunum.