Dalbraut 18-20
Verkefnastjóri: Droplaug Guðnadóttir
Sími: 411-2500

Dalbraut 18-20 samanstendur af tveimur fjölbýlishúsum með eignaríbúðum fyrir aldraða og félagsmiðstöð sem rekin er af Reykjavíkurborg.
Félagsstarf
Í félagsmiðstöðinni er fjölbreytt félagsstarf í boði og má þar meðal annars nefna leikfimi, spilamennsku og upplestur ásamt fjölbreyttum námskeiðum, postulínsmálun og fleira.
Þjónusta
Hægt er að kaupa mat alla virka daga ársins. Bókabíll stoppar við húsið alla fimmtudaga kl. 11:30 og Bónus sendir rútu einu sinni í viku fyrir þá sem vilja gera innkaup í Bónus. Annan hvern þriðjudag á milli kl. 10:00 -11:00 kemur hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni í Lágmúla. Ennfremur er KB banki með bankaþjónustu fyrsta fimmtudag í mánuði frá kl. 10:30 til kl. 11:00, þar sem fólk getur sinnt öllum almennum bankaviðskiptum. Nánari upplýsingar varðandi þjónustuna eru veittar í síma : 588-9533
Hárgreiðslustofa Guðrúnar á Dalbraut 18-20 er opin alla virka daga nema mánudaga. Síminn þar er 553-3884 og 893-3384