Dalbraut 21-27
Forstöðumaður: Droplaug Guðnadóttir
Sími: 411 2500
Bréfsími: 411-2513
Tölvupóstfang: droplaug.gudnadottir@reykjavik.is

Að Dalbraut 27 eru þjónustuíbúðir og félagsmiðstöð.
Þjónustuíbúðir
Að Dalbraut 27 eru fjörutíu og sex einstaklingsíbúðir. Að Dalbraut 21-25 eru átján hjónaíbúðir eða þrjú raðhús með sex íbúðum hver. Heilsugæslulæknar eru starfandi við þjónustuíbúðirnar. Vakt er allan sólarhringinn og er innanhússbjöllukerfi tengt frá hverri íbúð inn á vaktherbergi. Þeir sem þess þurfa fá aðstoð við að fara í bað, dagleg persónuleg þrif og heimilishjálp. Þvottur íbúa er þveginn. Íbúar geta verið í fullu fæði ef þeir óska þess.
Félagsstarf
Margvíslegt félagsstarf er í boði, svo sem eins og leikfimi, jóga og boccia auk fjölbreyttrar handavinnu.
Þjónusta
Heimaþjónustu og stuðningsþjónustu í Laugardalshverfi er stýrt frá Dalbraut 27
Í félagsmiðstöðinni er boðið upp á ýmis konar þjónustu, svo sem hárgreiðslu og fótaaðgerðir. Hægt er að kaupa hádegismat alla daga vikunnar. Verslun er opin þrjá daga í viku frá kl.10:00-13:00, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. KB banki sinnir bankaþjónustu fyrsta fimmtudag í mánuði á milli kl. 9:30 og 10:30 þar sem íbúar geta sinnt öllum venjulegum bankaviðskiptum.
Nánari upplýsingar varðandi þjónustu eru veittar í síma: 411-2500.