Furugerði 1
Forstöðumaður: Margrét Benediktsdóttir
Sími: 411 2740
Tölvupóstfang: margret.benediktsdottir@reykjavik.is

Í Furugerði 1 eru þjónustuíbúðir og félagsmiðstöð.
Þjónustuíbúðir
Þjónustuíbúðirnar í húsinu eru sjötíu talsins þar af eru fimmtíu og sex einstaklingsíbúðir og fjórtán hjónaíbúðir. Í Furugerði er vakt allan sólarhringinn og öryggiskallkerfi í hverri íbúð. Íbúar og aðrir þeir sem nýta þjónustu í Furugerði 1 geta fengið baðaðstoð ef með þarf. Heimaþjónusta er í húsinu og veitir aðstoð við þrif og þvotta.
Félagsstarf
Í félagsmiðstöðinni er fjölbreytt félagsstarf í boði. Í boði er meðal annars handavinna, bókband, smíði, leikfimi, boccia, kór, framhaldssögur, gönguferðir, leikhúsferðir, söngstundir, bingó og spil.
Þjónusta
Hægt er að kaupa mat alla daga ársins og kaffi alla virka daga kl. 15:00. Í húsinu er hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofa auk verslunnar sem Kvenfélagið Hvítabandið rekur og er opið tvisvar í viku. Í húsinu er setustofa með sjónvarpi og dagblöð liggja frammi.
Þjónustufulltrúi frá Landsbankanum kemur einu sinni í viku. Bókabíllinn stoppar við húsið á hverjum þriðjudegi og Bónus sendir rútu einu sinni í viku fyrir þá sem vilja fara og versla í Bónus.
Nánari upplýsingar varðandi þjónustuna eru veittar í síma: 411-2740
Sóknarprestur Grensáskirkju messar þriðja hvern föstudag í mánuði yfir vetrarmánuðina.