Hvassaleiti 56-58
Sími 535 2720
Bréfsími 588 9323
Tölvupóstfang: asta.haraldsdottir@reykjavik.is

Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 er opin öllum borgarbúum en þar fer fram fjölbreytt félagsstarf.
Félagsstarf
Opnunartími félagsmiðstöðvarinnar er alla virka daga frá 8:30-16:30. Í félags- og tómstundastarfi er kennt fjölbreytt handverk af ýmsu tagi. Á fimmtudögum eru fastir spiladagar. Reglulega eru sögu- og samverustundir, sem öllum er frjálst að sækja. Þá er líka boðið upp á þjálfun í jóga og boccia. Sérstakar uppákomur eru t.d. leikhúsferðir, þorrablót, jólafagnaður, haustfagnaður, grillveislur og fleira. Yfir sumartímann eru farnar styttri ferðir bæði innan og utan Reykjavíkur.
Þjónusta
Þá er boðið upp á ýmiskonar þjónustu, svo sem hárgreiðslu, fótaaðgerðir og baðþjónustu. Allir geta komið og fengið keyptan mat í hádeginu, en hann þarf að panta fyrir klukkan 09.30 samdægurs. Kaffiveitingar eru alla virka daga. Blöðin liggja frammi til aflestrar. Frekari upplýsingar um þjónustuna í síma 535 2720