Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Norðurbrún 1

Norðurbrún 1
Forstöðumaður: Sigríður Ólafsdóttir
Sími: 411 2760
Tölvupóstfang: sigridur.olafsd@reykjavik.is

 norðurbrún

Að Norðurbrún 1 eru þjónustuíbúðir og félagsmiðstöð.

Þjónustuíbúðir
Að Norðurbrún 1 eru sextíu þjónustuíbúðirnar, fimmtíu og tvær íbúðir eru fyrir einstaklinga og átta hjónaíbúðir. Þjónustuíbúðir eru ætlaðar þeim sem þurfa aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili. Öryggiskerfi er í húsinu og vakt allan sólarhringinn.Veitt er heimaþjónusta eftir þörfum hvers og eins. 

Félagsstarf
Félagsmiðstöðin er opin öllum aldurshópum alla virka daga frá kl. 09:00-17:00. Fjölbreytt dagsskrá er í boði, meðal annars spilamennska, boccia, handavinna, tréskurður, leirmunanámskeið, upplestur, kvikmyndasýningar og leikfimi. Einnig eru ýmsar skemmtanir í boði eins og jólaskemmtun, hausthátíð og ferðalög.

Í dagbók Morgunblaðsins má fylgjast með dagskrá félagsstarfsins í Norðurbrún.

Þjónusta
Í félagsmiðstöðinni eru boðið upp á ýmiskonar þjónustu, svo sem hárgreiðslu, fótaaðgerðir, bankaþjónustu og bænastund. Heitar máltíðir eru seldar í hádegi alla daga. Nauðsynlegt er að panta þær fyrirfram. Kaffiveitingar eru seldar alla virka daga.

Nánari upplýsingar varðandi þjónustuna eru veittar í síma: 568-6960 

Fótaaðgerðastofa er opin mánud og miðvikud. frá kl. 9:00-16:00  sími 568 3838.
Hárgreiðslustofa er opin þriðjud. og föstud. frá kl.9:00-17:00 sími 588 1288.
Bankaþjónusta er fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 10.45.
Bókabíllinn er á fimmtudögum kl: 10.00 - 10.30.


Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða

Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða
Síðumúla 39
108 Reykjavík
Sími: 411 1500
Fax: 411 1599
laugardalur.haaleiti@reykjavik.is
Opnunartími: 08:30-16:00


Sendu inn hugmynd eða ábendingu - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögregla í Háaleitis- og Bústaðahverfi