Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Leik- og grunnskólar

Í Háaleiti og Bústaðahverfi eru starfræktir 12 leikskólar, þar af þrír einkareknir. Á leikskólunum fer fram fjölbreytt og þroskandi starf sem stuðlar að alhliða þroska barna í hverfunum.

Í hverfunum eru einnig 6 grunnskólar, þar af 3 heildstæðir, sem þjónusta íbúa í Háaleiti og Bústaðahverfi.

Allar skólastofnanir í hverfunum vinna í nánu samstarfi við sérfræðinga Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis með það í huga að veita börnum og ungmennum í hverfinu sem allra best skilyrði til náms og að blómstra sem einstaklingar.

Allir borgarreknir leikskólar og grunnskólar heyra undir Skóla- og frístundasvið. Á skrifstofu Skóla- og frístundasviðs eru: Fagskrifstofur leik- og grunnskóla, fjármálastjórnun, bókhalds- og launaþjónusta leik- og grunnskóla og innheimta leikskólagjalda, starfsmannaþjónusta leik- og grunnskóla, upplýsingatækniþjónusta leik- og grunnskóla og skrifstofa sviðsstjóra


Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða

Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða
Síðumúla 39
108 Reykjavík
Sími: 411 1500
Fax: 411 1599
laugardalur.haaleiti@reykjavik.is
Opnunartími: 08:30-16:00


Sendu inn hugmynd eða ábendingu - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögregla í Háaleitis- og Bústaðahverfi