Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hlíðar

Norðurmýri, Hlíðar, Hlemmur, Holt, Suðurhlíðar, Öskjuhlíð og Nauthólsvík

Hlíðar

Hlíðahverfi liggur austan miðborgar Reykjavíkur allt að Kringlumýrarbraut. Hverfið er gróið íbúahverfi í Hlíðum, Holtum og Norðurmýri.

Ríflega 9.550 Reykvíkingar höfðu heimilisfestu á 4.190 heimilum í Hlíðum þann 1. desember 2009. Óvenjumargir erlendir ríkisborgarar búa í hverfinu eða ríflega 10% íbúa. Heldur hærra hlutfall barna býr í hverfinu heldur en að meðaltali í öðrum hverfum borgarinnar.

Hlíðarbúar státa meðal annars af fallegu útivistarsvæði í Öskjuhlíðinni, Perlunni, Kjarvalsstöðum,  íþróttafélaginu Val, Nauthólsvík og  Háskólanum í Reykjavík svo dæmi séu nefnd. Reykjavíkurborg rekur víðtækja þjónustu í hverfinu, meðal annars í gegnum Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða að Skúlagötu 21.