Hverfisstarf

Hlíðar státa af öflugu hverfastarfi í grónu og fjölskylduvænu umhverfi. Þar má nefna virka starfsemi frjálsra félagasamtaka, íþróttafélags og kirkju. Íbúar í hverfinu eru duglegir að nýta sér Miklatún og Öskjuhlíð til útivistar.
Öflugt skólastarf á grunn- og framhaldsskólastigi fer fram í hverfinu. Hverfislögregla og heilsugæsla þjónusta íbúa og eiga samráð við aðrar stofnanir og þjónustuaðila í hverfinu.
Ábendingar um efni á síðurnar um hverfastarf í Hlíðum má senda með því að smella hér.