Hverfisráð Hlíða
Hverfisráð Hlíða hefur aðsetur á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21.
| Kjörnir: |
Til vara: |
| Sigurður Eggertsson |
Herdís Þórsteinsdóttir |
|
Hilmar Sigurðsson, formaður hilmar@hil.is |
Stefán Benediktsson |
| Linda Ósk Sigurðardóttir |
Guðný Aradóttir |
| Jóhann Birgisson (frá 1.2.'11) |
Jón Kári Jónsson |
| Sigríður Hallgrímsdóttir (frá 8.7.'10) |
Geir Sveinsson (frá 1.2.'11) |
| Áheyrnarfulltrúi VG |
|
| Garðar Mýrdal |
Davíð Stefánsson. |
Um hverfisráð
Hverfisráð eru starfandi í öllum 10 hverfum borgarinnar. Hlutverk þeirra er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þeirra. Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgarstofnana í einstökum hverfum.
Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og eiga að stuðla að eflingu félagsauðs í hverfum.
Þá ber hverfisráðunum að stuðla að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfunum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa.
Hverfisráðin eru skipuð fimm fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna