Kynslóðir tálga saman
14.05.2010
Upplestur á frétt 
Samstarf félagsmiðstöðvarinnar Hraunbæ 105 og Ártúnsskóla heldur áfram. Um daginn
buðu nemendur Ártúnsskóla þátttakendum á tálgunámskeiðinu í grenndarskóginn
og lásu m.a. fyrir þau ljóð og gáfu þeim eldbakað brauð og kakó í skóginum.
Nú var komið að því að bjóða 5 nemendum í 5 bekk skólans í heimsókn í
Hraunbæ 105 þar sem hópurinn hittist einu sinni í viku.
Kynslóðirnar tvær sátu þar saman og tálguðu músarindla og yngri kynslóðin
naut aðstoðar sér reyndari tálgurum og var ekki annað að sjá en vel færi á
með þeim.

Gestgjafarnir sýndu gripi sína og sögðu frá reynslu sinni af tálgun fugla og
margs annars sem þau höfðu gert í vetur. Næsta miðvikudag kemur nýr hópur
frá skólanum í heimsókn í Hraunbæinn.
Kynslóðirnar halda síðan sameiginlega sýningu í lok maí á þeim fjölmörgu
gripum sem þau hafa verið að vinna að undanförnu.
Gestirnir þáðu veitingar og fóru glaðir aftir í skólann.
Texti og myndir: Ól.Oddss.