Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

3.fl. kvenna hreinsar við stofnbrautir í Árbænum

19.05.2010

Upplestur á frétt

Hverfisráð Árbæjar hefur gert samkomulag við foreldraráð og stúlkur í 3. flokki kvenna hjá knattspyrnudeild Fylkis.
Samkomulagið felur í sér að þær  að sjá um hreinsun við  stofnbrautir í Árbæjahverfi í sumar. Á móti fá stúlkurnar
styrk sem rennur í sjóð vegna fyrirhugaðrar keppnisferðar til Bandaríkjanna í sumar.  Stúlkurnar eru skráðar til
leiks á USA-cup sem fram fer í Minniapolis í Bandaríkjunum dagana 13.-20.júní.  Stúlkurnar hafa verið mjög duglegar
við fjáröflun það sem af er ári en auk þess hafa þær verið að standa sig vel á keppnisvellinum og enduðu í 3.sæti á
Reykjavíkurmótinu. 

Frá undirritun samkomulags

Frá undirritun samkomulags. F.v. Margrét Gunnarsdóttir, f.h. foreldraráðs, Björn Gíslason, formaður hverfisráðs Árbæjar,
Svanhildur Lýðsdóttir, f.h. foreldraráðs. Standandi eru þær Birgitta Stefánsdóttir, Rannveig Gestsdóttir og Arna Ösp Gunnarsdóttir
leikmenn 3.fl. kvenna.