Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Haustmarkaður á Árbæjarsafni

24.08.2010

Upplestur á frétt

Haustmarkaður verður haldinn á Árbæjarsafni sunnudaginn 29. ágúst. Fólk getur komið með grænmeti, sultur, handverk eða annað skemmtilegt og selt á markaðnum. Það kostar ekkert að vera með. Árbæjarsafn býður upp á aðstöðu á torginu en fólk verður sjálft að koma með borð, stóla, tjald eða það sem hverjum hentar. Það verður frítt inn á safnið þennan dag.


Vinsamlegast sendið annað hvort póst á minjasafn@reykjavík.is eða hringið í síma 4116320, ef þið hafið áhuga á að vera með og látið vita hvað vörur þið eruð með á boðstólum.