Styrkir veittir úr Forvarnarsjóði Reykjavíkurborgar
19.12.2011
Upplestur á frétt 
Í Árbænum voru það verkefni á vegum skátafélagsins Árbúa annars vegar og íbúasamtaka Norðlingaholts hins vegar sem hlutu styrki.
Verkefni skátafélagsins Árbúa snýr að þjálfun og menntun eldri skáta með það að markmiði að styrkja skátastarfið í hverfinu. Styrkupphæð var kr. 350.000
Verkefnið sem íbúasamtök Norðlingaholts og samstarfsaðilar fengu styrk fyrir er betrumbætur á Björnslundi í þágu allra íbúa. Styrkupphæð var kr. 350.000
Í Grafarholti og Úlfarsárdals var það foreldrafélag leikskólans Geislabaugs sem hlaut styrk til uppgræðslu og betrumbóta lóðar við Krosstorg. Styrkupphæð var kr. 550.000
-JRJ-