Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Nemendur Breiðholtsskóla tóku til hendinni í hverfinu

28.05.2010

Upplestur á frétt 

Laugardaginn 15. maí síðastliðinn mættu yfir 40  nemendur í Breiðholtsskóla ásamt sex foreldrum á bílaplanið hjá 10-11 við Arnarbakka til að eyða nokkrum klukkutímum í að hreinsa hverfið næst skólanum, mála yfir allt veggjakrot, týna upp rusl og sópa stéttar í kringum veslunarkjarnann, útvistarsvæðið og skólalóð Breiðholtsskóla. Krakkarnir vöktu mikla athygli með þessu framtaki sínu og var þeim hrósað mikið af þeim sem áttu leið framhjá og talaði fólk um hversu miklir fyrirmyndarunglingar þeir væru. Eftir alla tiltektina var krökkunum svo boðið til grillveislu af foreldrunum. Þetta framtak er til fyrirmyndar og öðrum til eftirbreytni. Myndirnar tala sínu máli - hverfisráð Breiðholts og Þjónustumiðstöð Breiðholts óska þessum vaska nemenda- og foreldrahópi til hamingju með framtakið.