Mér líður eins og ég hugsa
07.02.2012
Upplestur á frétt 
Námskeiðið Mér líður eins og ég hugsa verður haldið á Þjónustumiðstöð Breiðholts þann 5. mars 2012, kl. 14:30. Námskeiðið er haldið vikulega í sex vikur og lýkur 23. apríl. Sjá nánari upplýsingar í bækling.
Námskeiðið er forráðamönnum að kostnaðarlausu.
Mér líður eins og ég hugsa er samstarfsverkefni Þjónustumiðstöðvar Breiðholts og geðsviðs Landspítala háskólasjúkrahúss. Námskeiðið er fyrir alla þá sem líður illa, þótt áherslan sé einkum á þá sem eru með kvíða- og depruðareinkenni. Meðferðin heitir hugræn atferlismeðferð og er sálfræðileg meðferð sem hefur orðið mjög vinsæl á síðustu 25 árum. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á árangri svona meðferðar og benda niðurstöður þeirra til að hún hafi jákvæð áhrif á líðan fólks.
Hugræn atferlismeðferð byggist á að hugsun okkar hefur mikil áhrif hvernig okkur líður og hvernig við hegðum okkur.
Námskeiðið fer fram í hópi og byggist á fræðslu og heimaverkefnum, þar sem kenndar eru aðferðir til að takast á við kvíða- og depurðartilfinningar.Í hverjum hópi eru 15-25 þátttakendur en tveir sálfræðingar stýra námskeiðinu. Námskeiðið er haldið einu sinni í viku, 75-90 mínútur í senn, í sex vikur. Fyrir annan tíma eru forráðamenn boðaðir á 30 mínútna kynningarfund þar sem efni og framvinda námskeiðsins er kynnt nánar. Að námskeiðinu loknu fær hver unglingur og forráðamaður einstaklingsviðtal við sálfræðing þar sem árangur er metinn og næstu skref skoðuð í samráði við foreldri og ungling. Eftirfylgd er síðan í boði fjórum mánuðum eftir síðasta tíma til þess að fá meiri aðstoð ef ekki hefur gengið nógu vel og einnig til að styrkja árnagur sinn þannig að hann vari lengur.
Námskeiðið er haldið í áttunda sinn á Þjónustumiðstöð Breiðholts.