Nemendur Sæmundarskóla vinna verkefni á útistöðvum
03.06.2010
Upplestur á frétt 
Í Sæmundarseli var mikið um að vera í morgun og nemendur iðnir við að bæta aðstöðuna undir leiðsögn kennara og sjálfboðaliða frá SEED´s en um þessar mundir eru fjórir sjálfboðaliðar frá samtökunum við störf í Sæmundarseli.
Helstu verkefni sem nemendur voru að vinna að þegar undirritaðan bar að var, almenn tiltekt í kennslustofunni og nánasta umhverfi, útbúa skjólveggi, skilti með skilaboðum til gesta og stækkun á rjóðrinu. Nemendur í Sæmundarskóla hafa verið iðnir í vetur við að hanna og byggja þrautabraut og er hún farin að taka á sig skemmtilega mynd. Ýmsar framkvæmdir hafa verið í skógarrjóðrinu sem nýtast í skólastarfinu og er óhætt að segja að Sæmundarsel er með skemmtilegri „skólastofum“ á Reykjavíkursvæðinu. Sjón er sögu ríkari.
Undirritaður hvetur Grafarholtsbúa til þess að gera sér ferð í Sæmundarsel og skoða hverju hefur verið áorkað af nemendum og starfsmönnum Sæmundarskóla. Jafnframt er rétt að minna á að Sæmundarsel er hluti af skólastarfi Sæmundarskóla og ber gestum að ganga vel um rjóðrið og virða þá miklu vinnu sem liggur að baki þessa skemmtilega svæðis.


Myndir og texti
JRJ