Styrkur til samstarfsverkefna
15.12.2011
Upplestur á frétt 
Starfshópurinn Ódýrari frístundir starfaði árið 2010 og hafði það markmið, samkvæmt erindisbréfi, að finna leiðir til að stuðla að ódýrari frístundum fyrir börn og unglinga, forvörnum, samstarfi í hverfum og vinna gegn óæskilegu brottfalli úr skipulögðu starfi. Með einkunnarorðin ,,frístundir fyrir alla” að leiðarljósi setti hópurinn fram tillögur árið 2011 sem byggja á jafnrétti til frístunda, óháð efnahag, uppruna og kyni. Jafnframt að leita leiða til að örva nýbreytni og nýsköpun á sviði íþrótta- og tómstundamála.
Hópurinn lagði til að af 20 milljóna fjárveitingunni verði 10 milljónum deilt til hverfisráðanna, ein milljón á hvert hverfi. Hverfisráðin ráðstafi styrkjum til samstarfsverkefna sem þau telja mikilvægust út frá markmiðum um ódýrari frístundir og forvarnir og aðgerðir gegn óæskilegu brottfalli úr skipulögðu starfi. Sérstaklega verði horft til þess að efla frístundastarf barna úr efnalitlum fjölskyldum. ÍTR hefur eftirlit með ráðstöfun og nýtingu styrkjanna.
Það er hverfisráð Grafarholts og Úlfarsárdals sem auglýsir eftir styrkumsóknum í milljón króna pott sem hverfisráðið hefur til ráðstöfunar fyrir þetta ár.
Umsóknarfrestur er 30.desember og skulu umsóknir berast í rafrænu formi á netfang: solveig.reynisdottir@reykjavik.is eða jon.ragnar.jonsson@reykjavik.is