Þrettándabrenna í Grafarholti
04.01.2012
Upplestur á frétt 
ÞRETTÁNDABRENNA Í GRAFARHOLTI
Í Leirdal, við grasæfingasvæði Fram við enda Þorláksgeisla.
Dagskrá sem hér segir:
19:30 Blysför frá Guðríðarkirkju, með fánabera frá Árbúum, álfa og ynjur úr æskulýðsstarfi Guðríðarkirkju, Unga álfaprinsa og prinsessur úr Fókus og skólahljómsveit Grafarvogs og Grafarholts í broddi fylkingar.
Seldir verða kyndlar við anddyri kirkjunnar.
20:00 Söngskemmtun í Leirdal.
• Skólahljómsveit Grafarvogs og Grafarholts spilar. Stjórn. Einar Jónsson.
• Brennukóngur tendrar í Þrettándabrennunni.
• Spilað og sungið fyrir í þrettándasöng. Guðni Franzson, Tóney.
• Jólasveinar koma í heimsókn.
• Glæsileg flugeldasýning Fram.
Fylgist með á heimasíðu íbúasamtakanna. www.grafarholt.com
Þrettándagleðin er samstarfsverkefni íbúasamtaka Grafarholts, Grafarholtssóknar, Skólahljómsveitar Grafarvogs og Grafarholts, Félagsmiðstöðvarinnar Fókus, Íþróttafélagsins FRAM, Foreldrafélaga grunnskólanna, Skátafélagsins Árbúa, Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla.
Veggspjald má sjá hér.
-JRJ-