Skemmtidagur eldri borgara
23.06.2010
Upplestur á frétt 
Sumarhópurinn í Gufunesbæ býður öllum eldri borgurum í Grafarvogi að eiga skemmtilegan dag í Hlöðunni í Gufunesbæ miðvikudaginn 14. júlí næstkomandi milli kl. 14:00 - 17:00. Þar verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Aðgangur er ókeypis.
Allir eldri borgarar velkomnir. Þátttökuskráning fer fram í síma 411 1400 eða á netfang hjá birna.robertsdottir@reykjavik.is þar þarf að koma fram nafn, sími og heimilisfang ef að þátttakendur vilja láta sækja sig á viðburðinn.
Skráning fer fram til 9. júlí 2010.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 520 2300.
Dagskrá Skemmtidags eldri borgara (PDF 265KB).