25 ára afmæli félagsmiðstöðvarinnar í Hvassaleiti
29.11.2011
Upplestur á frétt 
Það var glatt á hjalla í félagsmiðstöðinni Hvassaleiti á dögunum þegar 25 ára starfsemi félagsmiðstöðvarinnar var fagnað.
Í afmælisfagnaðinn mættu starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar, fastagestir og aðrir áhugasamir um þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram. Heimildamenn Þjónustumiðstöðvarinnar áætla að um 140 manns hafi sótt afmælisfagnaðinn.
Boðið var upp á tilkomumiklar kræsingar en hæst bar án efa innkoma Ragnars Bjarnasonar sem settist við píanóið og lék sína þekktustu slagara af sinni alkunnu snilld.
Meðfylgjandi myndir tók Unnur Halldórsdóttir.