Styrktartónleikar Kaffi Flóka
19.08.2010
Upplestur á frétt 
Styrktartónleikar Kaffi Flóka verða haldnir þann 26. ágúst klukkan 20:00 í Fíladelfiu kirkjunni á Laugarvegi.
Safnað verður fyrir glænýjum vinnustað/kaffihúsi. Ungir geðfatlaðir einstaklingar munu sjá um reksturinn þar sem kaffi- og léttar veitingar verða boðnar til sölu.
Á tónleikunum munu eftirfarandi listamenn koma fram: Stefán Hilmarsson ,Guðrún Gunnarsdóttir,Gunnar Þórðarsson,Jóhann Helgason,Eyjólfur Kristjánsson, Edgar Smári og Gospelkór Reykjavíkur undir stjórn Óskars Einarssonar.
Fleiri listamenn eiga eftir að staðfesta þátttöku en aðgangseyrir er 2000 kr og rennur hann óskiptur til styrktar Kaffi Flóka.
Verkefnið hefur nú þegar hlotið styrk frá Evrópu unga fólksins og Atvinnuátakssjóði Reykjavíkurborgar en þarfnast enn frekari styrkja til þess að hópurinn geti hafið rekstur.
Góða skemmtun!
Frekari upplýsingar:
Matstofan ber nafnið Kaffi Flóki ses, sjálfseignarstofnun. Markmiðið með stofnun matstofunnar er að skapa tækifæri fyrir geðfatlaða einstaklinga til atvinnuþátttöku. Þar sem ungu fólki með geðfötlun í Reykjavík gefast takmörkuð tækifæri til atvinnusköpunar fannst hópnum tilvalið að taka sig til og stofna félagið.
Gríðarleg tækifæri felast í sjálfstæðum rekstri af þessum toga, enda er markmiðið að gefa fleiri geðfötluðum einstaklingum tækifæri á að skapa sér atvinnu þar. Matstofan mun verða rekin að Snorrabraut 27 í Reykjavík, þar sem mannlífið iðar á sumrin.
Markmiðið er að matstofan stækki að umfangi í framtíðinni. Viðskiptalíkan Kaffi Flóka er fremur einfalt til að byrja með, fólkið vinnur launalaust við að útbúa og bjóða viðskiptavinum upp á hádegismat og kaffi á viðráðanlegu verði. Framtíðarmarkmið Kaffi Flóka er að verða sjálfbær rekstrarlega; svo hægt verði að greiða einstaklingunum laun.
Hópurinn mun reka matstofu með aðstoð verkefnastjóra. Miðað verður við að matstofan nýtist sem brú einstaklinganna út í atvinnulíf almenns vinnumarkaðar í framtíðinni, fyrir þá sem þess óska. Styrktaraðilar Kaffi Flóka fá nafn sitt auglýst í tengslum við verkefnið. Samfélagið allt hagnast af sjálfstæðum verkefnum af þessum toga, færniþjálfun geðfatlaðra einstaklinga er fjárfesting sem seint verður metin á efnislegum mælikvörðum.