Aðalfundur íbúasamtaka Hlíða, Holta og Norðurmýrar í kvöld
13.12.2011
Upplestur á frétt 
Íbúasamtök 3. hverfis, Hlíða, Holta og Norðurmýrar boða til aðalfundar í kvöld þriðjudaginn 13. desember á Kjarvalsstöðum kl. 20. Á fundinum verða helstu málefni hverfisins rædd og sagt frá starfi félagsins en einnig munu rithöfundar búsettir í Hlíðum, Vigdís Grímsdóttir og Sigurður Pálsson, lesa upp úr bókum sínum. Kaffistofan á Kjarvalsstöðum verður opin og vonast stjórn íbúasamtakanna til að sem flestir hverfisbúar komi og eigi saman notalega kvöldstund. Fundarstjóri verður Páll Benediktsson.