Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hundaeigendur virði taumskyldu

22.07.2010

Upplestur á frétt 

Undanfarið hefur borist talsvert af kvörtunum til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna lausagöngu hunda í borginni. Samkvæmt samþykkt um hundahald í Reykjavík er hundaeigendum skylt að hafa hunda sína í taumi víðast hvar í borgarlandinu og skapa brot á því óþægindi fyrir alla borgarbúa.

Enginn kærir sig um að mæta lausum hundi þar sem tryggt á að vera að hundar séu í taumi enda getur hætta stafað af slíku fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Þá ber að hafa í huga að sumir eru hræddir við hunda og eru dæmi um að þeir forðist að vera á ákveðnum stöðum í borginni af ótta við að mæta lausum hundum þar sem hundar eiga þó að vera í taumi. Hundaeigendur kvarta sjálfir einnig undan lausagöngu annarra hunda því hún skapar óþægindi og jafnvel hættu fyrir þá og dýrin þeirra.

Þótt langflestir hundaeigendur virði reglurnar á það því miður ekki við um alla. Heilbrigðiseftirlitið skorar því á alla hundaeigendur að virða samþykkt um hundahald í Reykjavík; koma í veg fyrir ónæði, s.s. hávaða, hirða upp eftir hunda sína, hafa þá í taumi þar sem við á og koma í veg fyrir hvers konar hættu sem stafað getur af hundahaldi. Leyfi til hundahalds í Reykjavík er háð því að eigendur fari að samþykktinni og með því getur um leið skapast sátt um hundahald í borginni.

Rétt er að minna á að lausaganga hunda er leyfð á Geirsnefi, Geldinganesi og á auðum svæðum fjarri íbúðabyggð. Taumskylda er hins vegar á öllum öðrum svæðum í borginni, meðal annars á skipulögðum göngustígum s.s. í Elliðaárdal, Fossvogsdal og við Rauðavatn.