Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Dagskrá Rauðakrosshússins: Taktur, Býflugurnar, prjónahópur, neyðarvarnir Rauða krossins og fleira

23.07.2010

Upplestur á frétt 

Mánudagurinn 26. júlí

Gönguhópurinn Njótandi og þjótandi – Gengið frá mismunandi stöðum á höfuðborgarsvæðinu þrisvar í viku (mán.kl.13, mið. og fös. kl. 10). Ef þú vilt njóta og þjóta með fáðu upplýsingar um upphafsstaðinn hjá Ármanni, raudakrosshusid@gmail.com

Taktur - Hópastarf fyrir 16-25 ára. Hönnunarhópur, prjónahópur, myndlistarhópur, heilsuhópur, fréttasmiðja, atvinnuleit og ferilskrá.

Tími: 9:00 - 12:00

Nokkur góð ráð í kreppunni - Við horfum saman á stutta þætti um hvernig er hægt að bæta líðan sína í kreppu og hvernig er gott að tala við börnin. Umræður. Tími: 13:00-14:00

Prjónahópur - Við komum saman, prjónum, heklum, fáum okkur kaffi og höfum það notalegt. Ef veður leyfir prjónum við úti. Tími: 13:00 – 15:00

EFT og djúpslökun – Innleiddu EFT tæknina (Emotional Freedom Techniques) inn í daglegt líf þitt og umbreyttu heftandi viðhorfum. Þú átt skilið að njóta tilfinningalegrar gleði og góðrar heilsu og slökunar. Umsjón: Viðar Aðalsteinsson EFT sérfræðingur. Tími: 14:00 - 16:00

 

Þriðjudagurinn 27. júlí

Taktur - Hópastarf fyrir 16-25 ára. Hönnunarhópur, prjónahópur, myndlistarhópur, heilsuhópur, fréttasmiðja, atvinnuleit og ferilskrá.

Tími: 9:00 - 12:00

Neyðarvarnir Rauða krossins – Vissir þú að fjöldahjálparstöðvar eru opnaðar á hættu- og neyðartímum til að taka á móti fólki sem þarf að yfirgefa heimili sín? Jón Brynjar mun fræða gesti um hvernig Rauði krossinn sinnir fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi á neyðartímum. Umsjón: Jón Brynjar Birgisson, verkefnisstjóri neyðarvarna. Tími: 13:00 - 14:00

Gönguhópur - Við göngum rösklega út frá Rauðakrosshúsinu hvernig sem viðrar. Umsjón: Guðrún Guðmundsdóttir. Tími: 13:00 - 14:00

Vinnum saman - Ný viðhorf (Býflugurnar) - Vilt þú vinna í skapandi hópi að góðum verkum fyrir samfélagið og þig sjálfa(n)? Komdu og taktu þátt í skemmtilegu verkefni með okkur og settu þinn svip á það.Tími: 14:00 - 16:00

 

Miðvikudagurinn 28. Júlí

Miðvikudagar eru dagar unga fólksins í Rauðakrosshúsinu. Fólk á aldrinum 16-25 ára er sérstaklega hvatt til að mæta.

Taktur - Hönnunarhópur, prjónahópur, heilsuhópur, fréttasmiðja, íslenskuhópur, atvinnuleit og ferilskrá. Tími: 09:00 - 16:00.

Skapaðu þér góða framtíð! - Hópastarf fyrir 16-25 ára. Hvernig má styrkja sjálfsmynd og vinna með tilfinningar? Kennd verður tilfinninga-stjórnun sem hjálpar til við að byggja upp góða framtíð. Fimmti hluti af sex. Lokað! Umsjón: Guðrún S. Berg m.ed í sálfræði. Tími: 13:00 - 15:00

Briddsklúbbur Hefur þú gaman af Bridds? Eða langað lengi til að læra Bridds? Komdu og spilaðu í blönduðum hópi byrjenda sem og lengra komna. Tími: 14:00 - 16:00

Gönguhópurinn Njótandi og þjótandi – Ef þú vilt þjóta með fáðu upplýsingar um upphafsstaðinn hjá Ármanni, raudakrosshusid@gmail.com

 

Fimmtudagurinn 29. júlí

Taktur - Hópastarf fyrir 16-25 ára. Hönnunarhópur, prjónahópur, myndlistarhópur, heilsuhópur, fréttasmiðja, atvinnuleit og ferilskrá.

Tími: 9:00 - 12:00

Saman í súpunni – Lærðu að gera gómsæta sjávarréttasúpu í anda Chile. Allir gestir fá að smakka súpuna. Umsjón: Francisco Cepeda frá Chile. Tími: 13:00 - 14:00

Tölvuaðstoð – Þarftu aðstoð við að læra á tölvur, vafra um netið eða senda tölvupóst? Fáðu persónulega aðstoð. Tölvur á staðnum en fólk er hvatt til að mæta með eigin fartölvu ef þess er kostur. Tími: 13:30 - 15:30

Heilsuhópur - Umræður um betri líðan. Hefur þú eitthvað til málanna að leggja? Viltu fá hvatningu til að hreyfa þig meira? Komdu og taktu þátt í líflegum umræðum um heilsu. Tími: 14:00 - 15:00

Art of living – Kenndar verða teygjur og öndun en í þessari viku verður sérstaklega fjallað um mikilvægi hugleiðslu. Umsjón: Lilja Steingrímsdóttir, Art of living. Tími: 15:00 - 16:00

 

Föstudagurinn 30. júlí

LOKAÐ!

Heilsuhópur Takts - Útileikfimi! Mæting kl. 09:00 í Rauðakrosshúsið. Leikfimin hefst kl. 09:30 í Nauthólsvík. Allir velkomnir! Umsjón: Ingólfur Pálsson, verkefnastjóri Takts - Kópavogsdeild.