Nemakort Strætó í umferð á ný
17.08.2010
Upplestur á frétt 
Notendur nemakortanna voru tæplega 5.000 talsins síðasta vetur.
Nú styttist í að framhaldsskólar og háskólar hefji störf eftir sumarfrí, sem þýðir jafnframt að nemakort Strætó fara í umferð á ný. Strætó bs. býður nemendum með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu sem eru í fullu námi við framhalds- og háskóla á höfuðborgarsvæðinu upp á nemakortin, en þetta er annað árið sem þau eru boðin í núverandi mynd.
Nemakortin nutu mikilla vinsælda á síðasta skólaári, en tæplega fimm þúsund námsmenn nýttu sér þennan kost. Í könnun sem gerð var meðal notenda síðasta vetur af Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands kom fram að yfir 90% voru ánægðir með nemakortið og um 85% töldu það hafa hvetjandi áhrif á notkun þeirra á strætó. Samkvæmt könnuninni fara nemakorthafar að jafnaði níu ferðir vikulega með strætó.
Sala á nemakortunum hófst í dag á www.strætó.is og geta þeir sem eiga kost á að kaupa nemakort pantað þau þar. Hægt er að kaupa kort sem gilda ýmist eina önn eða allt skólaárið og kosta þau fyrrnefndu 8.000 krónur en kort sem gilda allt skólaárið 15.000 krónur. Taka þarf þó fram að þar sem upplýsingar um skráða nemendur hafa ekki borist frá öllum skólum á höfuðborgarsvæðinu þurfa nemendur viðkomandi skóla að bíða með pöntun þar til skólinn hefur skilað inn gögnum til Strætó bs.
Það eru sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Álftanes, sem bjóða námsmönnum sveitarfélaganna þessi sérkjör. Nemakortin eru hagstæður kostur fyrir námsmenn því þau eru umtalsvert ódýrari en strætókort sem gilda í jafnlangan tíma. Mismunurinn á fullu verði strætókorts og verði nemakortsins er greiddur af því sveitarfélagi sem viðkomandi nemandi hefur lögheimili í.