Dagskrá Rauðakrosshússins
27.08.2010
Upplestur á frétt 
Mánudagurinn 30. ágúst
Ljósmyndaklúbbur – Við lærum eitthvað nýtt í hverri viku, skoðum afraksturinn saman og setjum okkur verkefni fyrir vikuna. Komdu með myndavélina með þér og fáðu góð ráð. Umsjón: Þór Gíslason, ljósmyndari. Tími:13:00 14:00
Prjónahópur - Við ætlum að koma saman, prjóna, hekla, fá okkur kaffi og hafa það notalegt. Tími: 13:00 - 15:00
Hvað er í boði fyrir félagsmenn VR í vetur - Hauststarf VR er komið á fulla ferð og fulltrúi VR ætlar að koma á staðinn og fara yfir það helsta sem í boði er af námskeiðum og hádegisfyrirlestrum í september og október. Umsjón: Jóhanna Elísabet Vilhelmsdóttir, verkefnastjóri. Tími: 13:00 - 14:00
Kynning á Félagsvinum – Sjálfboðaliðar óskast til að gerast félagsvinir kvenna og barna af erlendum uppruna og aðstoða þau við að opna dyr samfélagsins. Kynntu þér málið ef þér finnst gaman að kynnast nýju fólki, spjalla og hafa áhrif á líf annarra. Umsjón: Marín Þórsdóttir, verkefnisstjóri. Tími: 15:00 - 15:30
Þriðjudagurinn 31. ágúst
Bowen tækni – Kynntu þér Bowen tækni sem getur lagað kvilla og bætt líðan þína til muna. 20 mín. prufutímar fyrir einstaklinga. Skráning nauðsynleg. Umsjón: Guðmann Elísson, Bowen tæknir. Tími: 13:00 - 15:30
Gönguhópur - Við göngum rösklega út frá Rauðakrosshúsinu hvernig sem viðrar. Umsjón: Guðrún Guðmundsdóttir. Tími: 13:00 - 14:00
Matsveppir í náttúru Íslands. Nú er aðalsveppatíminn í hámarki og sérfræðingurinn kemur og fræðir gesti um góðgætið, hvar þá er að finna, hvernig má tína þá og hvað eigi fyrir alla muni að forðast. Umsjón: ÁsaMargrét Ásgrímsdóttir, sveppasérfræðingur. Tími: 13:0 - 14:30
Vinnum saman - Ný viðhorf (Býflugurnar) Vilt þú vinna í skapandi hópi að góðum verkum fyrir samfélagið og þig sjálfa(n)? Komdu og taktu þátt í skemmtilegu verkefni með okkur og settu þinn svip á það. Tími: 14:00 - 16:00
Skiptifatamarkaður – Barnaföt – Markaðurinn fer aftur af stað eftir sumarfrí! Skólaföt, íþróttaföt, skór og ýmislegt fyrir veturinn. Komdu með notaðar flíkur barnanna og skiptu í aðrar stærðir og gerðir. Tími: 16:00-18:00
Miðvikudagurinn 1. sept
Taktur - Hópastarf fyrir 16-25 ára. Hönnunar-, prjóna-, myndlistar- og jógakennari. Tími: 15:00 - 16:00 heilsuhópar, fréttasmiðja, atvinnuleit og ferilskrá. Tími: 09:00 -12:00
Náðu settu marki –. Þú getur gert, átt eða verið það sem þú vilt! Það ert þú sem ákveður framtíð þína. Loka hluti af þremur sjálfstæðum fyrirlestrum fyrir 30 ára og yngri. Umsjón: Ólafur Þór Ólafsson, Phoenix leiðbeinandi ogLMI þjálfi. Tími: 10:00-12:00
Tölvuaðstoð – Þarftu aðstoð við að læra á tölvur, vafra um netið eða senda tölvupóst? Fáðu persónulega aðstoð. Tölvur á staðnum, en fólk er hvatt til að mæta með eigin fartölvu ef þess er kostur. Tími: 13:30-15:30
Ayurveda heilsufræði - Lifir þú í takt við þína „náttúrulegu“ líkamsgerð? Eða lifir þú eftir lífsstíl sem viðheldur ójafnvægi í þinni líkamsgerð? Kynnt verður hvernig greina má eigin líkamsgerð og sinna henni í matarræði,
hugarfari og lífstíl. Umsjón Sigurlín Guðjónsdóttir, Ayurvedískur heilsuráðgjafi.Tími: 13:00-14:00
Ráðgjöf fyrir innflytjendur- Sérsniðin lögfræðiráðgjöf og stuðningur við innflytjendur. Skráning nauðsynleg. Tími: 14:00-16:00
Briddsklúbbur – Hefur þú gaman af Bridds? Eða langað lengi til að læra Bridds? Komdu og spilaðu í blönduðum hópi byrjenda sem og lengra komna. Tími: 14:00 - 16:00
Fimmtudagur 2. sept
Fyrirlestur um Guinea bissau - Viltu fræðast um eitt fátækasta ríki veraldar? Íslensk kona segir frá reynslu sinni frá þessu fallega landi í vestur Afríku. Umsjón. Guðrún Helga Jóhannsdóttir, Afríkufræðingur.Tími: 13:00 - 14:00
Saumasmiðjan - Gamlar flíkur fá nýtt útlit, stutt verður langt, vítt þröngt, götótt bætt og alveg nýtt verður til. Komdu með saumavél ef þú getur. Umsjón: Ósk Óskarsdóttir, kjóla- og klæðskeri. Tími: 13:00 - 15:00
Jóga – Viltu prófa jóga ? Þú lærir léttar æfingar og teygjur og slakar svo vel á í lokin. Gott er að mæta í þægilegum fatnaði og hafa létt teppi meðferðis. Umsjón: Janice Balfour, jógakennari.Tími: 15:00 - 16:00.
Föstudagurinn 3. sept
Náðu settu marki – Þú getur gert, átt eða verið það sem þú vilt! Það ert þú sem ákveður framtíð þína. Þriðji hluti af þremur sjálfstæðum fyrirlestrum. Umsjón: Ólafur Þór Ólafsson, Phoenix leiðbeinandi og LMI þjálfi.
Tími: 13:00 - 15:00
Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri og gleði? Hláturjóga getur hjálpað til við að auðga lífið. Umsjón: Ásta Valdimarsdóttir
Útileikfimi í Nauthólsvík- Leikfimi fyrir alla og farið í sjóinn á eftir. Mæting í Nauthólsvík kl.10. Allir velkomnir! Umsjón: Heilsuhópur Takts og Gönguhópurinn Njótandi og þjótandi.