Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

300 milljónum varið til hverfaverkefna sem borgarbúar velja

02.01.2012

Upplestur á frétt 

Reykjavíkurborg óskar nú eftir hugmyndum á vefnum Betri Reykjavík til eflingar og fegrunar í hverfum Reykjavíkur. Sett hefur verið upp undirsíða á Betri Reykjavík sem nefnist Betri hverfi. Þar geta íbúar sett inn hugmyndir að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfunum og stutt hugmyndir annarra eða hafnað þeim.  Eru ákveðin tímamörk á þessu verkefni en íbúar munu geta sett inn hugmyndir á vefinn til 16. janúar 2012. Vefurinn um þessi hverfaverkefni var opnaður 5. desember sl. en eftir 16. janúar verða efstu hugmyndir teknar af vefnum og metnar af fagsviðum borgarinnar. Ef framkvæmd þeirra heyrir undir verkahring Reykjavíkurborgar verða þær kostnaðarmetnar en síðan verður kosið um þær í rafrænni og bindandi kosningu í mars. Er ætlunin að veita 300 milljónum til þessara verkefna á næsta ári.

Óskað er eftir hugmyndum sem geta haft áhrif á umhverfi og möguleika til útivistar og samveru, aðstöðu eða tækifæri til leikja eða afþreyingar, bætta aðstöðu og möguleika gangandi vegfarenda eða bætta aðstöðu fyrir notendur strætó í hverfunum.

Þau fagsvið borgarinnar sem vinnar úr hugmyndum íbúa eru framkvæmda- og eigna-, skipulags- og byggingar-, og umhverfis- og samgöngusvið.  Í því felst að hugmyndirnar eru kostnaðarmetnar, auk þess sem metið er hvort framkvæmd þeirra sé í verkahring borgarinnar og þær falli að skipulagi hennar, svo og hvort þær séu í samræmi við lýsingu um nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni.

Í framhaldinu munu hverfaráðin stilla upp verkefnum sem íbúum gefst kostur á að kjósa um með rafrænum hætti, þar sem atkvæðin verða dulkóðuð, frá 8. – 13. mars 2012. Með þessu er íbúunum gert kleift að forgangsraða fjármunum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012. Niðurstaða kosninganna um val verkefna verður bindandi.
Heildarfjármagn til þessara verkefna er 300 milljónir sem skipt er á milli hverfa borgarinnar samkvæmt ákveðinni reglu.  Hafa verður í huga að ekki er verið að kjósa um allar verklegar framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar. Mun meira verður framkvæmt í hverfunum á næsta ári. Reykjavíkurborg hvetur Reykvíkinga til að kynna sér vefinn og taka virkan þátt í því að koma með og velja raunhæfar hugmyndir til að gera borgina enn betri fyrir alla íbúa hennar.

Nánari upplýsingar er að finna á betrireykjavik.is