Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Stóra upplestrarkeppnin – menningarhátíð í tónlist og tali

24.03.2010

Upplestur á frétt 

Fimmtudaginn 25. mars verðurlokahátíð Stóru upplestrarkeppninnarí Ráðhúsi Reykjavíkur.Með hækkandi sól eru haldnar upplestrarhátíðir,sem eru í raun orðnar nokkurs konar vorboðar. Á þessum hátíðum er upplesturí hávegum hafðuren einniger víða boðið upp á tónlistarflutningbarna og ungmenna úr heimabyggð.Stóra upplestrarkeppnin hefur skotið rótum í íslensku skólastarfi og er nú á sínu fjórtánda starfsári.Formlega hefst verkefnið 16. nóvember á degi íslenskrar tungu, fæðingardegiJónasar Hallgrímssonar, og er ánægjulegt að fylgjast með þeirri miklu og fjölbreyttu ræktun, sem fram fer í skólunum allan veturinn.Um er að ræða víðtækt þróunarverkefni, sem nær til þúsunda barna og fjölskyldna um allt land. Meginmarkmið verkefnisins er að efla íslenskt mál og færni nemenda í notkun þess og þó að um sé að ræða keppnisform skiptir mestu almenn þátttaka nemenda.Það hefur sýnt sig að aukin rækt við upplestureflir gjarnan sjálfstraust barna og áhugaþeirra á móðurmálinu. Vandvirkni og virðing eru aðalsmerki starfsins og mikill metnaður er lagður í undirbúning og lokahátíðir úti í skólum. Meginþungi undirbúnings hvílirá kennurum og starfsfólki skóla í samvinnu við nemendur 7. bekkja grunnskólanna. Að baki Stóru upplestrarkeppninni standa Raddir, samtökum vandaðan upplestur og framsögn en markmið samtakanna eru:

·Að vekja athygli og áhuga á vönduðum flutningi og framburði íslensks máls.

·Að allt ungt fólk læri að njóta þess að flytja móðurmál sitt, sjálfu sér og öðrum til ánægju.

·Að efla virðingu ungs fólks fyrir móðurmálinu, sjálfu sér og öðrum.

Á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnarí Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 25. mars n.k. koma fram fulltrúarfrá Austurbæjarskóla, Grandaskóla, Háteigsskóla, Hlíðaskóla, Landakotsskóla, Melaskóla og Vesturbæjarskóla.

Hátíðin er öllum opin og hefst klukkan 16:00.