Réttindi mín
19.04.2010
Upplestur á frétt 
Föstudaginn 12. mars mættu nemendur frá frístundaheimilinu Hlíðaskjóli á opnun á listasýningu verka sinna á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
Í byrjun janúar 2009 fengu börnin á frístundaheimilum Kamps (í Miðborg og Hlíðum) litla bók, Réttindi mín, til að vinna út frá. Í bókinni er Barnasáttmálinn settur fram í einfaldri mynd í formi tíu réttinda. Í hverri viku voru ein réttindi tekin fyrir og rædd í litlum hópum og síðan föndruð. Dæmi um verk sem unnin voru á frístundaheimilinu Hlíðaskjól eru fjölskyldumyndir sem börnin teiknuðu, hróshálsfestar sem börnin gáfu hvert öðru og veggteppi.
Lokahátíð vinnunnar með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna var haldinn á sumardaginn fyrsta 2009 á Klambratúni. Gengið var með réttindaspjöld í réttindagöngu barna frá Austurbæjarskóla og niður að Klambratúni. Þar héngu listaverk barnanna í trjám og runnum á túninu.
9-10. maí var haldin sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur á þeirri vinnu sem fór fram í tengslum við Barnasáttmálann vorið 2009 á frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum Kamps.
Á sýningunni hér á Þjónustumiðstöðinni eru verk eftir börn frá frístundaheimilinu Hlíðaskjól. Nemendum Hlíðaskjóls var boðið á sýninguna ásamt starfsfólki Hlíðaskjóls og starfsfólki Þjónustumiðstöðvarinnar, sem og foreldrum barnanna. Boðið var upp á léttar veitingar sem féll vel í kramið. Gestir sýningarinnar voru sammála um að sýningin væri hin glæsilegasta og virkilega gaman að fá börnin í heimsókn.