Ungmennaráð Miðborgar og Hlíða fær 1.2 milljón króna styrk frá Evrópu unga fólksins til að búa til myndband og kennsluefni um einelti
29.04.2010
Upplestur á frétt 
Fulltrúar Ungmennaráðs Miðborgar og Hlíða geta heldur betur glaðst þessa dagana, en Evrópa unga fólksins ákvað að veita ungmennaráðinu styrk uppá 7.100 evrur, sem samsvarar um 1.2 milljónum króna, til að búa til myndband og kennsluefni um einelti.
Ungmennaráðinu er mjög umhugað um aðgerðir vegna eineltismála og vill leggja sitt af mörkunum í þessum málaflokki. Svo vel vill til að í hópnum eru aðilar sem hafa, þrátt fyrir ungan aldur, mikla reynslu af kvikmyndagerð. Var því sú stefna tekin að útbúa myndband sem höfðar til ungmenna og vekur fólk til umhugsunar um einelti.
Daníel Gylfason er 17 ára gamall nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hann hefur unnið til verðalauna á kvikmyndasamkeppninni Hilmarinn á vegum félagsmiðstöðvarinnar 105 í Háteigsskóla. Auk þess hefur hann verið tilnefndur til verðlauna í kvikmyndasamkeppnum innan lands sem utan, en þar má nefna Stuttmyndadaga í Reykjavík og Ljósvakaljóð og ein keppni í Finnlandi.
Fulltrúar ungmennaráðsins eru 13-18 ára nemendur í grunn- og framhaldsskólum í Miðborg og Hlíðum. Í ráðinu sitja fulltrúar úr Austurbæjarskóla, Hlíðaskóla, Háteigsskóla, Tjarnaskóla og Menntaskólans við Hamrahlíð.
Við óskum ungmennaráðinu okkar innilega til hamingju með þetta!